Þegar eru komnir nokkrir flottir fiskar á land hjá þeim veiðimönnum sem eru við veiðar á opnunardegi sjóbirtingsánna víða um land. Sá fiskur sem mesta athygli hefur vakið í opnunarhollunum er 7,6 kílóa staðbundinn urriði sem veiddist í Ytri-Rangá. Svakalegur fiskur og þykkur.
Það var Jóhannes Hinriksson sem setti í og landaði urriðanum ofan þjóðvegsbrúar þar sem Ytri-Rangá rennur í gegnum Hellu. „Ég ákvað að taka Black Ghost í gegnum neðsta hlutann á hylnum, eftir að strákarnir voru búnir að kasta. Þetta var klassískur Black Ghost með gúmmífálmurum. Einkrækja og ég dró mjög hægt. Þessi urriði negldi fluguna og viðureignin var mögnuð,“ sagði Jóhannes í samtali við Sporðaköst.
Þessi magnaði urriði vigtaði 7,6 kíló og er með þeim stærri sem veiðst hafa seinni ár í Ytri-Rangá. Lengdin var 81 sentímetri og ummál 52. Spikfeitur urriði og honum var sleppt. Einnig voru nokkrir sjóbirtingar veiddir og almennt voru menn sáttir við fyrstu klukkutímana í veiði þótt kalsasamt væri.
Einn þeirra sem opnuðu Eldvatnið í Meðallandi var Ríkarður Hjálmarsson. „Það var kalt, en meira gaman en kalt,“ sagði Ríkarður í samtali við Sporðaköst. Hann setti í og landaði fallegum sjóbirtingi. Þetta var 76 sentímetra fiskur og í ótrúlega góðum holdum að því er Ríkarður sagði og má raunar sjá það á myndinni sem fylgir fréttinni. Fiskurinn var óvenju bjartur miðað við stærð og tímasetningu. „Vonandi veit þetta á gott hér í Eldvatninu,“ sagði Ríkarður að lokum.
Þessum birtingi var sleppt eins öllum öðrum á því vatnasvæði. Erlingur Hannesson og félagi hans voru búnir að landa hvor sínum birtingnum að sögn Ríkarðs. En dagurinn er rétt að byrja.
Víða hafa menn brugðið á það ráð að skipta opnunum í tvennt til að tryggja tveggja metra regluna. Sumar ár voru opnaðar aðeins fyrr í samráði við landeigendur og dagar þá felldir út á móti. Markmiðið er að vera með færri menn í húsi þannig að hægt sé að sitja við borð á matmálstímum með góðu millibili. Þá eru dæmi um að settar hafi verið sérstakar þrifareglur vegna kórónuveirunnar. Sprittbrúsar eru líka í flestum veiðihúsum sem Sporðaköst hafa rætt við í morgun. „Menn taka þetta alvarlega og þó svo að fjarlægðin sé tryggð við sjálfar veiðarnar þá koma menn í hús og þar þarf að vanda sig til þess að fara að þeim tilmælum sem sett hafa verið fram,“ sagði Erlingur Hannesson, einn leigutaka Eldvatnsins, í samtali við Sporðaköst.
Hjónin og leigutakar að Leirá, Stefán Sigurðsson og Harpa HlínÞórðardóttir lönduðu fyrstu bitingunum í Leirá í morgun. Aðstæður voru kalsasamar og krefjandi. Áin var vatnsmikil en engu að síður var sett í fallega fiska og þeim landað og sleppt. Leirá er skammt frá Laxá í Leirársveit.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |