Theodór K. Erlingsson og Hafþór Hallsson félagi hans eru búnir að vera í ævintýralegu moki í Tungulæk frá því að þeir hófu veiði á hádegi á föstudag. Það er greinilegt að mjög mikið er af fiski í læknum og hann er að taka.
„Þetta er búið að vera rosalegt. Við erum að setja í hann í nánast hverju kasti,“ sagði Teddi í samtali við Sporðaköst í gærkvöldi. „Þetta er mest neðarlega og nálægt ósnum en samt er bara fiskur um allt. Veðrið er helsti áhrifavaldurinn í þessu en við erum ýmsu vanir að vestan,“ hlær Teddi sem á ættir að rekja til Vestfjarða.
„Þetta snýst ekki um veðrið. Þetta snýst um hugarfar. Ef þú vilt vera að spá í hversu kalt er þá ferðu bara upp í hús að grenja,“ sagði Teddi og hló. Hann viðurkennir að það þurfi að hafa vettlinga til skiptanna. „Ef þú ert með blauta vettlinga er þetta búið.“
Á fyrri vaktinni, sem var seinnipart föstudags, fengu þeir félagar 48 sjóbirtinga. Í gær lönduðu þeir samtals 46 þannig að þetta er búið að vera algert ævintýri hjá þeim.
Í hvaða standi er fiskurinn?
„Hann er bara ótrúlega flottur. Auðvitað eru slápar innan um en við erum mest að setja í 75 til 80 sentímetra fiska. Hér áður var algengt að mikið væri af 40 sentímetra puttum en við verðum lítið varir við þá.
Ég er búinn að veiða hérna í tólf ár í beit og þetta vor lítur einstaklega vel út,“ sagði Teddi í samtali við Sporðaköst í gærkvöldi.
Þeir eru að veiða þungt félagarnir og það eru sökktaumar og keilur sem gefa veiðina.
Þeir félagar hugsa sér gott til glóðarinnar í dag og ætla að fara á fullt í birtinginn. Þeir eru komnir með 94 fiska og langar að ná hundrað.
Eins Tungulækurinn var veiðilegur í gær þá blasti við allt önnur mynd í morgunsárið. Þessa mynd tók Teddi þegar aðstæður voru skoðaðar í morgun. Þetta er Réttarhylur og hann var einfaldlega lokaður af krapa og snjó.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |