Þeir settu heldur heldur betur í hana, Tómas Lorange Sigurðsson og félagi hans í Soginu í gær. Þeir voru að veiða Ásgarðsland og settu þar í mikið magn af bleikju og lönduðu 25 og einum urriða.
„Við veiddum þetta allt á kopar púpu, ekki ósvipaða og Pheasant tail, en ég þekki ekki nafnið á henni. Þetta voru grannar tökur og þá er gott að vera með tökuvara. Allir fiskarnir sem við lönduðum voru með púpuna í trjónunni eða kjaftvikinu,“ sagði Tómas í samtali við Sporðaköst í gærkvöldi að afloknum veiðidegi.
Við slepptum þeim öllum. Þetta er gamall fiskur og maður vill ekki ganga á þennan stofn. Ég er viss um að það væri auðvelt að veiða þetta upp til agna ef menn væru að taka þetta með sér.“
Þeir félagar fengu einn urriða en annars var þetta allt bleikja á bilinu fjögur til sex pund. Tómas hefur veitt þarna margsinnis og stærsta bleikjan sem hann hefur fengið á Breiðunni, eins og staðurinn heitir í Ásgarði, var heil tíu pund. „Eitt vorið sem fórum þarna þá veiddum við tuttugu bleikjur og sú minnsta var 5,5 pund. Það er ótrúlega gaman að sjá hvað þessi fiskur er vel haldinn og frískur.“
Þeir reyndu allar hefðbundnar púpur eins og Krókinn og fleira en það var ekki fyrr en þeir tóku þessa koparlituðu að bleikjan gaf sig. Hún er dyntótt eins og flestir veiðimenn þekkja. Svæðið í Ásgarði er opið fyrir bleikjuveiði fram til 20. júní en þá tekur við tíu daga hlé áður en laxveiðitímabilið hefst. Á móti Ásgarði er Bíldsfell en þar er ekki í boði vorveiði.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |