Stjórn Stangaveiðifélags Reykjavíkur tilkynnti í dag að allir félagsmenn fái 10.000 króna gjafabréf sem nýtist við kaup á veiðileyfum á ársvæðum félagsins á tímabilinu 10. - 25. maí.
Elliðaárnar eru þó undanskyldar og ekki er hægt að nýta gjafabréfið til lækkunar á veiðileyfum sem þegar hafa verið keypt.
Þá tilkynnti stjórnin einnig að inntökugjöld í félagið verði felld niður til 25. maí.
Í frétt sem SVFR hefur sent frá sér vegna þessa, segir: „Með gjafabréfinu og niðurfellingu inntökugjalda vill félagið koma til móts við félagsmenn sem hafa vafalaust ekki farið varhluta af ríkjandi samfélagsaðstæðum. Það er heldur ekkert launungarmál að ástandið kemur illa við Stangaveiðifélag Reykjavíkur en unnið er að því að koma félaginu klakklaust í gegnum storminn. Starfsmenn og stjórn er fullviss um að það takist, ekki síst ef félagsmenn leggjast á árar með félaginu. Hagsmunir félagsmanna og Stangaveiðifélagsins eru samofnir og því nýtist það sem hér hefur verið kynnt báðum vel.“
Allar nánari upplýsingar um útfærsluna og hvernig nota á gjafabréfið er að finna á heimasíðu SVFR og á facebook siðu félagsins.
SVFR býður upp á mörg áhugaverð veiðisvæði í silungi, laxi og sjóbirtingi. Hér gæti einnig verið kjörið tækifæri fyrir áhugasama sem vilja næla sér í afslátt að ganga í félagið og kanna hvaða veiðisvæði eru í boði.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |