Tónlistarmaðurinn Eric Clapton er orðinn þriðjungshluthafi í hlutafélaginu sem er með Vatnsdalsá á leigu. Þrír eigendur eru nú í félaginu GogP ehf. sem er með leigusamning við veiðifélag Vatnsdalsár.
Á sama tíma er Pétur Pétursson að selja sig út úr félaginu og segir þar með skilið við Vatnsdalinn sem hann hefur fóstrað frá því 1997.
Þessi breyting var kynnt á félagsfundi í Veiðifélagi Vatnsdalsár í gærkvöldi. Formaður félagsins kynnti þá nýja eigendur félagsins sem hefur leigusamninginn um ána. Um leið var greint frá brotthvarfi Péturs Péturssonar.
Aðrir hluthafar í félaginu GogP ehf. eru Björn K. Rúnarsson og Sturla Birgisson. Björn hefur lengi verið leiðsögumaður við Vatnsdalá og hluthafi með Pétri. Sturla rekur Laxá á Ásum og er landsþekktur matreiðslumaður.
Björn Rúnarsson segir að auðvitað sé mikill styrkur að því að fá mann á borð við Eric Clapton inn í félagið. „Hann er ástríðuveiðimaður og elskar Ísland. Hann hefur veitt hér hjá okkur síðustu tíu ár og þetta er hans leið til að halda tengslum við ána og landið. Svo er náttúrulega dýrmætt að fá inn sem hluthafa mann með tengslanet á borð við Eric Clapton. Hann mun án ef nýtast okkur vel í að ná í nýja viðskiptavini,“ sagði Björn í samtali við Sporðaköst.
Allt útlit er fyrir að Clapton komi til veiða í sumar í Vatnsdalsá en Covid-ástand gæti komið í veg fyrir það. „Hann ætlar að koma en staðan er óljós. En við vonumst til að sjá hann,“ sagði Björn.
Pétur Pétursson sem er þar með að kveðja Vatnsdalinn átti hugmyndina að því að selja sig út og taldi kominn tíma á að breyta til. „Þetta er allt í sátt og samlyndi,“ sagði Björn um brotthvarf Péturs.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |