Fyrsti veiðidagurinn í Laxá á Ásum rann upp í morgun. Áin er vatnsmikil en bongóblíða er á veiðimönnum. Tveir laxar komu á land en víða misstust fiskar og líf var með besta móti. Neðst í Langhyl voru veiðimenn að setja í fiska og fá eltingar.
Tumi og Sauðaneskvörn gáfu laxa í morgun. Nokkurt magn af fiski var að sjá við bílastæðið við Langhyl og sömu sögu er að segja af Mánafossstreng.
Sigurður Sigurðsson, eða Siggi raflax eins og hann er jafnan kallaður fékk fisk í Tuma og var greinilegt að sá fiskur var búinn að vera nokkurn tíma í ánni. Sturla Birgisson rekstraraðili í Ásum giskaði á að þessi fiskur hefði gengið fyrir hálfum mánuði. „Maður hefði viljað sjá fleiri koma á land því það var svo víða sem við urðum vör við fisk. En í heildina finnst mér þetta líta vel út,“ sagði Sturla í samtali við Sporðaköst.
Víða um vestanvert landið hafa menn verið að setja í fallega stórlaxa sem hafa verið tvö ár í sjó og eru af sömu kynslóð og smálaxinn sem kom í svo litlu magni í fyrra. Flestir bjuggust því við rólegheita veiði þar til smálaxinn fer að láta sjá sig. Þeir fiskar sem eru hins vegar mættir eru virkilega vel haldnir og svo vel að eftir því er tekið. Einn sá stærsti sem Sporðaköst hafa heyrt af í sumar veiddist í Laxapolli í Austurá í Miðfirði í morgun. Hann mældist 98 sentímetrar og tók Sunray. Veiðimaður var Ársæll Þór Bjarnason.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |