Fyrsti hundraðkallinn veiddist í Laxá í Dölum seinnipartinn í dag. Þar var að verki Arnór Ísfjörð Guðmundsson. Hann hafði sett í hrygnu í Kristnapolli í morgun og var hún 89 sentímetrar. Eftir hádegi átti hann aftur kost á Kristnapolli og varð hugsað til sögu sem hann hafði heyrt um að hægurinn tæki gjarnan eftir að hrygnan hefði veiðst.
Með þetta í huga fór hann með Collie Dog kón og kastaði yfir Kristnapoll. fljótlega fékk hann töku og eins og hann segir sjálfur frá; „Eftir svona fimm sekúndur hreinsaði hann sig alveg og ég áttaði mig á að þetta væri metrinn. Ég varð pínu stressaður þar sem ég var með ellefu punda taum. Vanalega tek ég fast á fiskum en var með þennan í fjörutíu mínútur. Hann var reyndar alveg þægilegur. Tók nokkrar ferðir upp og niður pollinn en svo náði ég að stranda honum og það var æðisleg tilfinning. Grýtti frá mér stönginni og stökk á hann. hann mældist 102 sentímetrar og ég tvímældi hann,“ sagði kátur veiðimaður í veiðihúsinu Þrándargili í Laxá í Dölum í samtali við Sporðaköst.
Arnór er svo sem enginn byrjandi þegar kemur að hundraðköllum. Þetta var hans áttundi. Hann fékk slíka fiska í Blöndu, Svartá, Hraunsfirði, Kjarrá, tvo í Langadalsá og einn í Eystri Rangá.
Ágætis veiði er í Laxá í Dölum að sögn Arnórs. Hollið sem klárar á hádegi á morgun er komið með 35 laxa og okkar maður er með átján af þeim.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |