Hreint út sagt mögnuð bleikja veiddist í Úlfljótsvatni á fimmtudaginn. Þar var að verki Guðjón Þór Þórarinsson. „Við hjónin vorum með yfirlýsingar kvöldið áður um að vakna eldsnemma og taka þetta með trompi. Það tókst nú ekki betur til en svo að við sváfum yfir okkur og vorum ekki komin í vatnið fyrr en klukkan ellefu,“ hlær Guðjón í samtali við Sporðaköst.
Það var skömmu eftir hádegi að bleikjan tók hjá honum í víkinni fyrir neðan kirkjuna. „Hún var ekkert mjög langt úti. Ég var að fara að rífa upp og kasta aftur þegar hún tók fluguna.
Ég var með fimmu Sage X og með sex punda taum. Hún tók fjórar rokur og alltaf langt niður á undirlínu. Þetta er svo stór sporður á þessari skepnu. Ég var á taugum allan tímann að hún myndi slíta. Þetta er langstærsta bleikja sem ég hef nokkurn tíma veitt.“
Þegar Gaui, eins og hann er kallaður, er spurður um hvernig hún hafi smakkast segist hann hafa farið með hana í reyk. „Það sagði einu sinni við mig maður þegar ég var með stóra bleikju úr Úlfljótsvatni: Ekki grilla bleikjuna, þú kveikir í grillinu, hún er svo feit.“
Bleikjan, sem var sex pund en ekki nema sextíu sentímetrar, tók Krókinn númer sextán.
„Ég var skotheldur á að ég myndi missa hana. Hélt fyrst að þetta væri urriði. En svo náði ég henni betur að mér og sá þá hvers kyns var.“
Hann var ásamt eiginkonunni á Þingvöllum í morgun en lítið var að gerast nema mikið af murtu. Hann ætlar svo aftur í Úlfinn í fyrramálið.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |