Við birtum reglulega veiðimyndir sem berast í veiðimyndasamkeppni Veiðihornsins, Árvakurs og Sporðakasta. Fyrri myndin að þessu sinni er hálfgerð felumynd en jafnframt skemmtileg. Myndasmiðurinn kallar þessa mynd „Tvö rándýr,“ enda sýnir hún tvö fim dýr sem bæði eru spennt yfir mögulegri veiði.
Myndin er tekin í Hölkná í sumar og er veiðimaðurinn Edward Dashwood að kasta á Geldingalækjarhyl. Myndina tók Guðmundur Guðlaugsson. Ef grannt er skoðað má sjá fálka sitja í bakkanum á móti veiðimanni. Erfitt er að greina fálkann við fyrstu athugun. En Guðmundur sendi okkur líka mynd af fálkanum.
Svo er mynd úr Laxá á Ásum. Hér er veiðimaðurinn Þór Sigmundsson í miklum áttökum við stórlax. Hann landaði þarna 84 sentímetra hrygnu er mikinn barning og eins og myndin ber með sér eru átökin mikil. Ljósmyndari er Guðrún Rannveig Stefánsdóttir
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |