Hann Erik Koberling staðarhaldari í Blöndu er sannarlega búinn að upplifa ævintýralega haustviku í laxveiðinni. Hann veiddi sem kunnugt er 100,5 sentímetra hæng í Miðfjarðará í lok síðustu viku. Í morgun hélt ævintýrið áfram hjá honum.
Hann mætti snemma morguns í þann rómaða stórlaxastað Bergsnös í Stóru Laxá. „Það var skítakuldi í morgun en ég ákvað samt að vera í yfirborðinu. Setti undir hefðbundna Sunray á floti. Vegna kuldans strippaði ég löturhægt og veiddi mig gjörsamlega niður á brot. Hann var á blábrotinu. Eins neðarlega og hægt var að komast. Hann kom upp úr afar rólega og tók Sunrayinn. Ég gaf honum tíma til að snúa og BANG,“ svona lýsir Erik Koberling viðureign sinni við afar glæsilegan hæng sem hann landaði í Stóru Laxá í morgun.
Hann segist elska haustveiðina. „Liturinn á hængunum er svo magnaður og þeir eru orðnir svo flottir. Þessi fiskur samsvaraði sér svo vel. Ég var að skoða myndir af laxinum sem Nils Folmer veiddi í Bakkafljóti í Víðidalsá í síðustu viku. Vá hvað hann er fallegur og litirnir eru svo fjölbreyttir.“
Stóra Laxá er þekkt fyrir sína haustveiði og oft eru menn að gera þar ævintýralega veiði fram á síðasta dag. En hængurinn sem Erik landaði mældist 95 sentímetrar. Þetta er fullkomið eintak af haust hæng og ljóst að Erik er sjóðheitur haustveiðimaður.
„Ég verð að komast meira að veiða, bara sjóbirting eða eitthvað,“ hló Erik að lokum.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |