Sá allra stærsti úr Víðidal í sumar

Kristján Jónsson með hrygnuna glæsilegu sem nú er komin í …
Kristján Jónsson með hrygnuna glæsilegu sem nú er komin í kistu. Hún veiddist í Efri Kæli. Ljósmynd/Aðsend

Í skítakulda og hávaðaroki veiddist stærsti lax sumarsins í Víðidalsá í morgun. Fiskurinn tók Ofsaboom túpu. Þetta gerðist í hinum fornfræga veiðistað Efri Kælir. Viðureignin var ævintýraleg og Kristján Jónsson frá Blönduósi setti í og landaði þessari stórvöxnu hrygnu sem mældist 107 sentímetrar.

Fljótlega eftir að fiskurinn tók ætlaði Kristján að spóla inn slakan og þá án nokkurs átaks var sveifin laus af hjólinu. Nú voru góð ráð dýr og Kristján þurfti að beita þeim ráðum að bakka upp á tún og koma svo nær ánni þegar fiskurinn strikaði út. Svona gekk þetta dágóða stund og í fjórgang var nærri búið að stranda fiskinum en alltaf paufaðist hún út aftur.

Flugan sem stórlaxinn tók í Efri Kæli. Þetta er Ofsaboom …
Flugan sem stórlaxinn tók í Efri Kæli. Þetta er Ofsaboom túpa. Ljósmynd/Aðsend

„Það vildi mér til láns að hún var ekki að taka miklar rokur og var mest að þumbast. Guðbjörg kona mín og félagi á svæðinu aðstoðuðu mig svo við að landa henni. Við mældum hana og komum henni svo beint í klakkistu,“ sagði Kristján í samtali við Sporðaköst.

Það vakti athygli þegar þríkrókurinn var losaður úr hrygnunni að krókurinn var samanklemmdur. Hann verður ekki notaður aftur.

Kristján hefur áður veitt 107 sentímetra lax og var það í Vatnsdalnum fyrir nokkrum árum í veiðistað sem heitir Bjarnasteinn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert