Hörkugangur er nú í gæsaveiðinni og sérstaklega eftir að kólnaði inni á hálendinu. Við heyrðum frá tveimur gæsaskyttum sem voru í birgi í Skagafirði. Þeir skutu samtals sextíu gæsir og þar af vara meirihluti heiðagæs.
„Þetta var magnaður morgun og við vorum í stöðugu flugi allan morguninn. Auðvitað skiptir máli í þessu að við vorum rétta morguninn. Ef að kólnar svona mikið og frystir á koma þær niður og við vissum það,“ sagði gæsaskytta í samtali við Sporðaköst.
Stefán Sigurðsson hjá Iceland Outfitters er með gæsa skytterí á sínum löndum í Melasveit. Hann segir að flugið hafi byrjað fyrr en venjulega og honum líst vel á þetta tímabil.
„Okkur finnst þetta vera að byrja fyrr en undanfarin ár en það er töluvert meira af fugli á svæðinu hjá okkur núna en á sama tíma undanfarin ár, besti tíminn er að venju október og fram í nóvember. Meðalveiði síðustu morgna er í kringum 20 gæsir sem er frekar gott,“ sagði Stefán Sigurðsson í samtali við Sporðaköst.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |