Ný sjónvarpsþáttaröð um silungsveiði á Íslandi er í framleiðslu. Umsjónarmaður þáttanna er Ólafur Tómas Guðbjartsson. Margir þekkja kappann af samfélagsmiðlum og þá undir nafninu Dagbók urriða, en það er einmitt nafnið á þáttaröðinni sem sýnd verður á Stöð 2 í vor.
Ólafur Tómas sagði í samtali við Sporðaköst að þetta hefði verið langt og strangt sumar. Hann hefði farið með tökuliði mjög víða og lent í öllum mögulegum og ómögulegum aðstæðum.
„Ég ferðaðist um landið í sumar í leit að svörum við ýmsum spurningum sem mig hefur lengi langað að fá svör við hvað silunginn varðar. Ég hitti áhugaverðar manneskjur og veiddi við ýmsar aðstæður og veðurskilyrði eins og íslenskir veiðimenn þurfa auðvitað að gera. Og þótt ég hafi veitt í kringum þrjátíu ár, þá er svo margt sem ég hef ekki leitt hugann að sem þó skiptir svo miklu máli fyrir mig til þess að verða betri silungsveiðimaður, hvort sem það viðkemur aðferðum, líffræði fiska, jarðfræði, vatnalíffræði eða skordýralífi. Ég spreytti mig á ýmsum svæðum sem ég hef ekki komið á áður og komst að því að ég á margt eftir ólært þegar kemur að silungsveiðinni. Það opnaðist nýr heimur fyrir mér hvað möguleika til silungsveiða á Íslandi varðar,“ sagði Ólafur Tómas aðspurður um innihald og áherslur nýju sjónvarpsseríunnar.
Allar tegundir, bleikja, urriði og sjóbirtingur, koma við sögu í þáttunum. „Já, allar tegundir nema laxinn enda er það svo með mína kynslóð af veiðimönnum að ég held að hún sé fyrst og fremst að veiða silung. Fyrir venjulegt fólk er nánast ógerningur að veiða lax á besta tíma. Það er hins vegar mjög viðráðanlegt í silungsveiðinni. Þegar ég lagði meiri áherslu á laxveiðina var maður alltaf að veiða á jaðartímum og það gaf bara lítið,“ sagði Ólafur Tómas.
Þættirnir verða sex talsins og verða á dagskrá Stöðvar 2 næsta vor og eru framleiddir hjá 101 Production.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |