Sami laxinn veiddist í opnun og lokun

Ársæll Þór Bjarnason með hænginn glæsilega sem tók Sunray í …
Ársæll Þór Bjarnason með hænginn glæsilega sem tók Sunray í Laxapolli í Austurá í Miðfirði, 17. júní. Ljósmynd/Aðsend

Við birtum sögu í gær af laxi sem veiddist í klakveiði í Miðfjarðará og var nokkur vissa fyrir því að þessi fiskur hefði veiðst viku áður en þá sloppið út um gat á háf veiðimanna. Nú hefur heldur betur bæst við þessa sögu.

Ársæll Þór Bjarnason hafði samband við Sporðaköst eftir að fréttin um 102 sentímetra hænginn birtist í gær og benti á að þetta væri sami lax og hann hefði veitt í opnun. Eftir að hafa legið yfir myndunum má glögglega sjá að þetta er sami fiskurinn.

„Doppusetningin á hausnum á honum er afgerandi og doppurnar eru sambærilegar við fingraför þar sem hver og einn fiskur er með sínar sérstöku doppur. Þegar ég veiddi hann í opnuninni mældist hann 98 sentímetrar og var þá nýgenginn,“ sagði Ársæll í samtali við Sporðaköst. 

Hér er svo klakfiskurinn sem veiddist um mánaðamótin september október. …
Hér er svo klakfiskurinn sem veiddist um mánaðamótin september október. Þá mældist hann 102 sentímetrar. Ljósmynd/Aðsend

Við birtum hér báðar myndirnar svo fólk geti sjálft lagt mat á þetta. Til að bera fiskana saman er rétt að horfa á svörtu doppurnar á hausnum á nýgengna laxinum og bera þær saman við klakfiskinn.

Eftir að laxinn gengur í fersk vatn breytist útlit hans og neðri skolturinn gengur fram og krókurinn stækkar og þykknar. 

Hér munar fjórum sentímetrum frá því að laxinn gekk. Ársæll veiddi þennan fallega vorlax í Austurá, rétt fyrir ofan veiðistaðinn Kerlingu. Í vor tók hann Sunray en undir lok veiðitímans var hann kominn lengst upp í Austurá og var sett í hann á Dimmblá tvíkrækju númer fjórtán. Eins og fyrr segir slapp hann þá úr háfnum og veiddist svo í klakveiði viku síðar og var settur í kistu.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert