Tilboð í veiðirétt í Ytri-Rangá og Vesturbakka Hólsár voru opnuð í veiðihúsinu við Ytri-Rangá í dag. Mikill áhugi var á útboðinu og bárust alls tólf tilboð.
Veiðifélagið tekur sér allt að fjórum vikum til að fara yfir tilboðin, að sögn Ara Árnasonar framkvæmdastjóra Veiðifélags Ytri-Rangár.
Þegar tilboðin voru lesin upp ríkti mikil spenna. Við fyrstu yfirferð virðist sem Hreggnasi sé með hæsta tilboðið, en félagið bauð ríflega 143 milljónir í leigu fyrir Ytri-Rangá og rúmar 20 milljónir fyrir Vesturbakka Hólsár. Tilboðið er til fimm ára og hljóðar upp á 715 milljónir fyrir sjálfa Ytri-Rangá og þar að auki rúmar tuttugu milljónir fyrir Vesturbakka Hólsár. Heildartilboðið er því hátt í 800 milljónir króna. Hreggnasi er með nokkrar ár á leigu. Laxá í Dölum, Grímsá og Svalbarðsá. Félagið er gjarnan kennt við Nóatúnsfjölskylduna.
Hæsta tilboð í Vesturbakka Hólsár kom hins vegar frá óstofnuðu félagi og hljóðaði það upp á rúmar 25 milljónir á ári.
Margir af þekktum leigutökum gerðu tilboð í veiðisvæðið. þannig var Fish Partner, Iceland Outfitters og fleiri með tilboð í veiðisvæðið.
Þetta er eitt umfangsmesta laxveiðisvæði landsins og telur samtals 22 stangir. Þannig er sextán stangir í Ytri-Rangá og sex á Vesturbakka Hólsár.
Sami leigutaki hefur verið með svæðið á leigu í átta ár og verður sumarið í sumar það síðasta og nýir leigutakar taka við sumarið 2022.
Ari Árnason, framkvæmdastjóri Veiðifélags Ytri-Rangár sagði í samtali við Sporðaköst, skömmu eftir að tilboðin voru opnuð að þessi mikli áhugi hefði ekki komið honum á óvart. „Þetta er eitt mest spennandi veiðisvæði landsins og við fundum fyrir miklum áhuga þegar við kynntum að til stæði að bjóða veiðiréttinn út.“
Sum þeirra tilboða sem bárust eru nokkuð flókin og þess vegna mun veiðifélagið taka sér allt að fjórar vikur til að fara yfir þau. Haft verður samband við alla tilboðsgjafa þegar þeirri yfirferð lýkur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |