Geirlandsá er ein af þessum spennandi sjóbirtingsám í námunda við Kirkjubæjarklaustur. Veiði hófst þar í gær og var býsna róleg framan af degi. Það hvessti aðeins seinni hluta dags og við það kom örlítil litabreyting í ána. Það gerði gæfumuninn.
„Hún var mjög vatnslítil í gærmorgun og kristaltær. Þegar leið á daginn kom svona örlítið musk í hana. Þetta var ekki mikið og svona rétt að maður áttaði sig á litabreytingunni. Þetta munaði þó því að í dýpstu hyljunum sást ekki í botn,“ sagði Gunnar J. Óskarsson formaður SVFK í samtali við Sporðaköst.
Þeir bræður Arnar og Gunnar fóru í leiðangur síðdegis í gær og fundu fiskinn þegar styttist í ljósaskiptin. „Við áttum þarna magnað kvöld. Við settum í átján birtinga í beit. Hann var á í hverju kasti. Arnar bróðir landaði einni sleggju 86 sentimetra og við misstum fisk eftir mikla baráttu sem var svo sannarlega 90 plús. Hann stökk og við sáum hann mjög vel.“
Í ljósi gærdagsins var fyrri hluti dags í dag nýttur í að standsetja veiðihúsið og koma nýjum mublum fyrir og gera og græja, eins og Gunnar orðaði það. Þeir stefna á að endurtaka leikinn síðdegis í dag í Ármótum.
Já var þetta í Ármótum, þar sem þið settuð í hann í gær?
„Þetta var nú eiginlega svona hálfgert No name. Auðvitað köllum við þetta Ármót en það er spurning hvað þau eiga að ná langt. Við vorum búnir að fá fiska til að elta fyrr um daginn og jafnvel þrír eða fjórir sem fylgdu flugunni en þeir voru ekki að taka. En þetta var heldur betur spennandi,“ sagði Gunnar að lokum.
Eins og við greindum frá í gær var góð veiði í Tungufljóti og Syðri-Hólmur geymir mikið af fiski. Seint í gær var heimildamaður okkar, Sigurður Guðmundsson, að kasta neðarlega í Syðri-Hólmi þegar hann fékk mikla neglingu. „Ég átti aldrei séns,“ sagði hann í samtali við Sporðaköst í morgun.
„Ég herti bremsuna eins og ég þorði en það skipti bara engu máli. Hann svínbeygði tvíhenduna og það söng í öllu. Ég heyri enn þytinn í línunni í hausnum á mér. Ég sá þennan fisk aldrei og hann tók út alla flugulínuna og var að klára undirlínuna þegar ég sleit úr honum. Krafturinn var slíkur að ég hef aldrei upplifað annað eins. Og það var tekið á þessum fiski,“ sagði Sigurður Guðmundsson. „Þetta var stóri draumafiskurinn.“
Opnunardagurinn hjá hollinu endaði í 24 fiskum og þó nokkrum misstum.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |