Félagar úr veiðiklúbbnum Óðflugum fengu spennandi dag í Ytri-Rangá í gær. Loksins komst hitinn yfir frostmark, yfir hádaginn, og þá lifnaði yfir fiskum og mönnum. „Þeir misstu tólf fiska en lönduðu fjórum. Þessir fiskar voru að taka Black Ghost og Orange Dýrbít. Mikið af tökunum voru grannar. Þessir strákar voru að taka þessu rólega og veiddu ekki nema á þrjár stangir,“ sagði Jóhannes Hinriksson, staðarhaldari við ána, þegar Sporðaköst leituðu frétta.
Gunnugilsbreiða og Breiðubakki voru heitu staðirnir og þar er greinilega mikið af fiski. Stærsti birtingurinn í gær var 75 sentimetrar en menn misstu nokkra í yfirstærð.
Við þessar aðstæður þarf að veiða með sökkendum og helst hraðsökkvandi. „Veðurspáin næstu daga er að sýna okkur að þetta kalda páskahret er að baki og þá geta verið spennandi tímar fram undan. Þegar eru bara bláar tölur í veðurkortunum þá er að frjósa í lykkjum og þetta verður mjög erfitt. Fiskurinn liggur líka bara og hreyfir sig ekki. Þetta eru slagsmál um örfáar gráður á hverjum degi. Næstu dagar bjóða upp á rauðar tölur og þá getur alveg orðið gaman,“ fullyrti Jóhannes.
Eftir tvo fyrstu daga tímabilsins, sem víða gáfu vel, gerði þannig kuldakast að nánast var óveiðandi i flestum ám. Nú horfir þetta til betri vegar og marga veiðimenn klæjar orðið í strippfingurinn.
Góðar fréttir bárust víða að í gær og líklegt að fréttir næstu daga verði uppörvandi.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |