Bleikjurnar í Soginu vekja sífellt meiri athygli. Eftir að sleppingar hófust í landi Ásgarðs hefur stofninn dafnað þar og sífellt fleiri ná þeirri stærð sem veiðimenn dreymir. Nú hafa komið magnaðir dagar í bleikjuveiðinni í Soginu og þá veiðist ein og ein í yfirstærð.
Erik Koberling, sem í fyrra gerðist staðarhaldari í Blöndu, var að veiða í Ásgarði í dag og í gær. Hann setti í bleikju sem viðstaddir giskuðu á að væri um sjö pund. Sjálfur hafði hann ekki tök á að mæla hana, þar sem hann var staddur úti í miðri á þar sem hann landaði henni. En myndin sýnir svo glögglega hversu magnað eintak þessi bleikja er.
Hún tók hina klassísku púpu Pheasant Tail númer sextán. „Þetta eru svo sterkir fiskar og ég tókst á við hana í fimmtán til tuttugu mínútur. En ég er búinn að læra að veiða bleikju hér með félögum mínum og það er búið að vera frábært,“ sagði kátur Erik Koberling.
Með hlýnandi dögum hefur bleikjuveiðin glæðst á svæðinu og komið hafa dagar þar sem menn hafa verið að landa upp í þrjátíu fiskum. Nánast öll veiðin er á púpur og veitt andstreymis.
„Það var svo frábært, eftir allt þetta Covid að komast út og fara að veiða í rólegheitum og njóta íslenskrar náttúru. Ég var alveg í skýjunum. Svo vorum við líka að veiða vel. Flottar bleikjur og líka stóra urriða. Alger vítamínsprauta,“ sagði Erik í samtali við Sporðaköst nú síðdegis.
Þetta er samt ekki stærsta bleikja sem Erik hefur veitt. Hann fékk stærri fisk í Bíldsfellinu fyrir mörgum árum síðan. Bíldsfellið er svæðið á móti Ásgarði. Þá vissi Erik til þess að Þrastarlundasvæðið hafði verið að gefa fína veiði og einn félagi hans fékk þar fimm bleikjur í síðustu viku.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |