Einn af reynslumestu urriðaveiðimönnum í Þingvallavatni er án efa Nils Folmer Jorgensen. Hann hefur stundað ION-svæðið mikið og þekkir mörg svæði í vatninu afar vel. Hann fór til veiða í fyrradag í landi Heiðarbæjar II, sem nefnt er Svörtuklettar.
„Það er mín reynsla að um leið og krían er komin til landsins þá fer urriðinn að taka við Svörtukletta. Ég sá í fjölmiðlum að krían væri mætt og ákvað þá að drífa mig af stað. Tveir vinir mínir frá London voru með í för. Við mættum frekar seint og vildum veiða inn í ljósaskiptin, sem er oft besti tíminn. Það var virkilega kalt en fallegt veður. Við vorum vel dúðaðir en við fundum vel fyrir kuldanum,“ upplýsti Nils.
Reynsla til fjölmargra ára hefur kennt Nils á samhengið milli kríunnar og urriðans við Svörtukletta. „Samt er alltaf spennandi að sjá hvort kenningin gengur upp. Það stóð heima. Við byrjuðum að kasta Olive Ghost með kón og fljótlega heyrðum við splass og urriðinn var greinilega mættur og var að veiða.“
Eftir rúma klukkustund höfðu þeir félagar landað fjórum fallegum urriðum. Ekki þeir stærstu í vatninu en áberandi vel haldnir. „Við vorum orðnir svo loppnir að við vorum ekki lengur með tilfinningu í fingrunum. En eftir að hafa landað þessum fjórum fiskum hættum við alsælir og miðstöðin í bílnum fékk að taka á því. Þetta var fullkomið vorkvöld við Þingvallavatn og hann er mættur við Svörtukletta.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |