Formaður Sjálfstæðisflokksins, var fljótur að skipta um galla eftir umræðuþáttinn í morgun í Ríkissjónvarpinu. Bjarni Benediktsson var ásamt öðrum formönnum þingflokka að ræða pólitíkina. Eftir að þættinum lauk, var formannsgallinn lagður hratt og örugglega til hliðar og veiðigallinn tekinn fram.
Hann og félagar héldu í Þingvallavatn, nánar tiltekið á ION svæðið. Þeir lentu í hörkuveiði og voru búnir að landa tuttugu ísaldarurriðum þegar Sporðaköst náðu tali af formanninum. „Þessi síðasti tók Héraeyra og þetta er búinn að vera magnaður eftirmiðdagur hjá okkur. Búnir að landa einhverjum tuttugu fiskum,“ upplýsti Bjarni Benediktsson í samtali við Sporðaköst.
Fjármálaráðherra er haldinn mikilli veiðidellu eins og koma fram í stóru viðtali sem tekið var við hann í Sportveiðiblaðinu á síðasta ári.
Veiðin á ION svæðinu í vor hefur verið mögnuð. Helsta breytingin er sú að minna er af þessum allra stærstu fiskum, sem mælast 90 plús sentímetrar. Hins vegar eru þessir sextíu til sjötíu sentímetra fiskar í afar góðum holdum og sterkir og menn mega hafa sig alla við.
Bjarni sendi okkur líka myndskeið sem hann tók upp þegar einu af þessum tundurskeytum var sleppt á nýjan leik. Það er ljóst að það var nægur kraftur í þessum.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |