Þrír maríulaxar eru komnir á land í kvennaholli sem nú er að veiðum í Þverá. Sá fyrsti kom í gærkvöldi úr Kaðalstaðastreng og var það lúsugur og vel haldinn smálax. Í morgun gaf svo „Kaðallinn“ annan maríulax. 83 sentímetra hrygnu og veiðimenn þar misstu þrjá til viðbótar. Þriðji maríulaxinn kom svo úr Flatarhyl sem er ofarlega í Þverá og mældist hann 73 sentímetrar.
Báðir laxarnir sem veiddust í morgun voru fallegar og vel haldnar hrygnur. Ekki lúsugar en glæsilegir vorfiskar. Egill Jóhann Kristinsson var leiðsögumaður þeirra Maríu og Írisar í morgun. „Við lentum bara í skemmtilegri veiði. Þær lönduðu báðar maríulaxi, við vorum að missa fiska og reisa. Þetta var alveg kærkomið líf,“ sagði Egill í samtali við Sporðaköst.
Þá kom 88 sentímetra fiskur í Brennunni í morgun og annar minni.
Kjarrá opnar í fyrramálið og vita menn af löxum sem eru komnir þangað upp eftir.
Síðasta holl í Norðurá gaf fimm laxa og voru þar komnir tólf laxar á land.
Lax hefur sést í Elliðaánum og þá greindi facebooksíða Miðfjarðarár frá því í dag að í Vesturánni hefðu sést um þrjátíu laxar í nokkrum veiðistöðum. Opnun þar er hinn 15. júní.
Í ljós kom að laxatalning í Miðfjarðará var gömul frétt frá aðdraganda opnunar í fyrra. Eitthvað hefur sést af laxi, en tölur ekki staðfestar fyrir þetta ár.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |