Reynir Friðriksson hélt með vaskan hóp upp á Skagaheiði um helgina. Veðurspáin var ekki spennandi en menn létu sig hafa það og uppskáru um fimmtíu fiska, þrátt fyrir skítakulda og hífandi rok.
„Við fórum upp á föstudag og þá var bara ein gráða og mjög hvasst. Ég held að við höfum haldist við í mesta lagi í fjörutíu mínútur það kvöldið,“ sagði Reynir léttur í bragði.
Það var heldur bjartara yfir aðstæðum á laugardag, hiti fór upp í heilar sex gráður og aðeins lifnaði yfir mönnum og fiskum. Þeir fóru upp frá Hrauni eins og þeir hafa gert nánast á hverju ári frá aldamótum. „Við veiddum Efra-Nesvatn, Hörtnárvatn, Steinatjörn og Neðstavatn. Svo veiddum við líka Hölkná og Nesá.“
Reynir var með þrjá syni sína með sér og notaði tækifærið til að kenna þeim meðal annars andstreymisveiði. „Við fundum góðan hyl í ánni og þar settum við undir pínulítið Pheasant Tail-afbrigði. Þessi púpa var afbrigði og virkaði svona líka vel. Lönduðum sjö flottum fiskum á stuttum tíma. Púpurnar voru líka orðnar að nánast engu. Það var búið að tyggja þær nokkrum sinnum. Við vorum búnir að skoða hvað fiskurinn var að éta og það voru mýpúpur, þannig að hann hélt áfram að taka þessar púpur þótt þær væru orðnar eyddar.“
Reynir sagði að urriðinn hefði verið virkilega vel haldinn og hann hefur bara sjaldan séð hann svona vel í holdum. Bleikjan aftur var enn sem komið er mjóslegnari fannst honum.
„Þetta er svona með lakari veiði sem við höfum gert þarna. En aðstæður voru nokkuð sérstakar, bæði veðrið og hluti af vötnunum var gruggugur út af rokinu. Menn hafa alveg verið að gera misjafna veiði þarna í vor. Allt frá því að veiða vel og yfir í það að vera bara frekar erfitt,“ upplýsti Reynir.
Þrátt fyrir kulda og rysjótt veður var ferðin frábær og sannkölluð stráka- og feðgaferð.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |