Sannkallaður stórlax úr Elliðaánum

Birkir Mar með stórlaxinn. Hann og Sindri Hlíðar eltu þennan …
Birkir Mar með stórlaxinn. Hann og Sindri Hlíðar eltu þennan um langan og torsóttan veg. Þeir eru búnir að landa þremur löxum í morgun og setja í fleiri. Ljósmynd/SHJ

Glæsilegur hængur af stærri gerðinni veiddist í Elliðaánum í morgun. Hann mældist 93 sentímetrar. Eftir því var tekið í fyrra að nokkur fjölgun var á stórlaxi í borgarperlunni. Þessi verklegi hængur er vonandi staðfesting á áframhaldandi stórlaxagengd í árnar.

Það var Birkir Mar Harðarson sem setti í þennan flotta fisk í Stórafossi. Fiskurinn tók Frances kón og var þetta alvöru viðureign sem lauk ekki fyrr en fyrir neðan göngubrúna. Eltu þeir félagar, Birkir Mar og Sindri Hlíðar Jónsson, fiskinn um 250 metra, áður en tókst að landa honum. Þegar Birkir lyfti fiskinum fyrir myndatöku missti hann út úr sér: „Hvaða rugl er þetta? Við erum í Elliðaánum sko.“

Þetta er stærsti laxinn úr Elliðaánum í sumar og gæti hæglega orðið sá stærsti í allt sumar, en sjálfsagt vonast margir eftir því að fá enn stærri lax í Elliðaánum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert