Þegar veiðigyðjan þakkar fyrir sig

Maros með höfðingjann af Hofsvaði í Eystri-Rangá. Mældist 101 sentímeter.
Maros með höfðingjann af Hofsvaði í Eystri-Rangá. Mældist 101 sentímeter. Ljósmynd/Kolskeggur

Það er óhætt að segja að hann Maros Zatko hafi upplifað hvað karma getur verið magnaður hlutur. Maros er veiðimaðurinn sem landaði 101 sentímetra fiski í Eystri-Rangá í fyrradag.

Fyrir nokkrum vikum fór hann ásamt fleirum í sjálfboðaverkefni við að bjarga innlyksa sjóbirtingum sem beið ekkert annað en dauði í Grenlæk í Landbroti. Fiskurinn var fastur í pollum og rann ekki vatn á milli þeirra enda Grenlækur þurr á margra kílómetra kafla. Fyrstu tvo dagana bjargaði hann ellefu stórum birtingum og keyrði þá niður í Flóð þar sem hann sleppti þeim.

Þetta er flugan sem stórlaxinn tók. Hún er enn nafnlaus. …
Þetta er flugan sem stórlaxinn tók. Hún er enn nafnlaus. Maros hannaði hana og hnýtti sjálfur. Ljósmynd/Maros

Sporðaköst höfðu samband við Maros vegna þessa verkefnis og spurðu meðal annars, af hverju ertu að gera þetta?

„Ég er veiðimaður og veiði mér oft til matar. Hér er tækifæri til að gefa til baka og mér finnst það mikilvægt,“ svaraði hann.

„Þú átt eftir að verða heppinn í veiðinni í sumar,“ lét ritstjóri síðunnar þá út úr sér. „Veiðigyðjan verðlaunar sína.“

Maros svaraði á móti að það yrði gaman.

„Mér var svo rosalega hugsað til þessa samtals, þegar ég sá laxinn í háfnum. Var að hugsa um þetta sem þú sagðir. En já það fylgdi þessu einhver blessun,“ brosti Maros.

Maros segir að laxinn hafi fyrst dregið sig þrjátíu metra …
Maros segir að laxinn hafi fyrst dregið sig þrjátíu metra upp hylinn og svo 150 metra niður hylinn. Ljósmynd/BHP

Hann var nýlega búinn að missa stóran fisk, áður en að hann setti í hundraðkallinn. „Ég var rosalega svekktur að missa hann en ákvað að labba aftur á sama stað og kastaði aftur. Þá tók þessi og þetta var svakaleg viðureign. Hann hreinsaði sig margsinnis alveg og fór með mig upp og niður og þetta tók sjálfsagt hálftíma, eða meira. En þegar ég sá hann í háfnum sagði ég, hann er of stór.“

Fiskurinn mældist eins og fyrr segir 101 sentímetri og tók flugu sem ekki hefur fengið nafn, en það er eins og með svo margar flugur hjá Maros. Hann hnýtir og hannar en er minna að hugsa um að skýra þær. Hér fylgir með mynd af flugunni sem hundraðkallinn féll fyrir. Veiðigyðjan launar oft ríkulega.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert