Charles Pearson, Bretinn sem veiddi hnúðlaxinn í Bíldsfelli í gær, borðaði fiskinn í kvöldmáltíð eftir að veiðidegi lauk. „Já, hann étur það sem hann veiðir. Það er bara svoleiðis,“ sagði Reynir Sigmundsson leiðsögumaður í morgun þegar Sporðaköst náðu sambandi við þá félaga.
Reynir flakaði hnúðlaxinn og sáldraði miklu magni af sítrónupipar á flakið. Auðvitað voru kartöflur og köld piparsósa með. Einnig var boðið upp á flak af smálaxi úr Eystri-Rangá og lambakjöt. Hnúðlaxinn féll vel í kramið og Charles sagði í samtali við Sporðaköst að ef atlantshafslaxinn væri upp á tíu væri hnúðlaxinn upp á átta. Eftir smá umhugsun bætti hann við. „Nei ég myndi segja 8,5.“
Reynir leiðsögumaður, sem sá um að flaka og elda, sagðist hafa smakkað hnúðlaxinn og hann hefði verið bara fínn. Daufara bragð en af okkar laxi en „örugglega gott fyrir krakkana“, hló Reynir.
Eins og áður segir veiddist laxinn við Neðri-Garð í Soginu í dag. Tveir aðrir hnúðlaxar veiddust í gær, í Norðurá og í Eystri-Rangá. Við hvetjum veiðimenn til þess að senda okkur línu og mynd ef þeir setja í hnúðlax.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |