Sveinn Jónsson, þrettán ára gamall veiðisnillingur sem býr á Egilsstöðum, setti heldur betur í flottar fjallableikjur á dögunum. Hann er hér með tvær glæsilegar kusur, eins og stórar bleikjur eru gjarnan kallaðar. Hann veiddi þær í á inni á hálendinu fyrir austan. Hann vill ekki gefa upp staðsetningu svo þar fyllist ekki allt af veiðimönnum og gangi mögulega nærri þessari perlu.
Það er ekki mikið af bleikju í ánni en hún getur orðið mjög stór. Bleikjurnar sem myndirnar eru af, eru 62 og 65 sentímetrar. Báðum var sleppt eftir æsilega baráttu. Önnur bleikjan tók Black Ghost en hin litla púpu, andstreymis með tökuvara. Græjurnar eru í léttari kantinum eða 10 feta Sage fyrir línu #4.
Sveinn sagði í samtali við Sporðaköst að hann hefði verið mjög lengi með stærri bleikjuna. Sennilega einar tuttugu mínútur. Sporðaköst óska honum til hamingju með þessa verðugu fulltrúa fjallableikjunnar. Báðum var þeim sleppt eftir myndatöku.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |