Mikil eftirspurn eftir „gamaldags veiði“

Ástdís tekst á við maríulaxinn sinn í á Gíslastöðum og …
Ástdís tekst á við maríulaxinn sinn í á Gíslastöðum og hafði betur. Ljózmynd/KA

Gíslastaðir í Hvítá í Árnessýslu eru eftirsótt veiðisvæði og seldist upp strax í vor. Þar er stunduð „gamaldags veiði“ þar sem laxinum er ekki sleppt nema menn vilji. Þrjár stangir eru á svæðinu og fékk veiðihúsið yfirhalningu í sumar.

„Það má segja að þeir sem hafa verið að veiða hafi verið að setja í fiska alla daga, mismunandi marga þó. Fleiri veiðistaðir hafa verið að koma inn sem segir okkur að fiskurinn er farinn að stoppa frekar, eins og gerist þegar líður aðeins á tímann. Það er sérstaklega ánægjulegt hversu margir ungir veiðimenn hafa verið að setja í fallega fiska,“ sagði Einar Páll Garðarsson í samtali við Sporðaköst. Hann og Jói, vinur hans, eru með svæðið á leigu og verð er hófstillt. 

Stolt veiðistúlka með maríulaxinn sinn. Pabbi hennar var búinn að …
Stolt veiðistúlka með maríulaxinn sinn. Pabbi hennar var búinn að bjóða henni að fara upp í hús að hlýjar sér. Hún svaraði að þar myndi hún ekki veiða fisk. Ljósmynd/KA

„Já, við köllum þetta gamaldags veiði,“ segir Einar Páll og brosir. Hann hefur miklar efasemdir um veiða og sleppa fyrirkomulagið sem nú er í velflestum ám.

Eins og hann nefndi hér að ofan eru margir ungir veiðimenn sem hafa náð að krækja í maríulax, eða stærsta lax sem þeir hafa landað fram til þessa.

Veiðimenn sem eru við veiðar í dag voru búnir að landa bæði 80 og 96 sentímetra löxum og misstu nokkra. 

Veiði í dag á Gíslastöðum. 80 og 96 sentímetra laxar …
Veiði í dag á Gíslastöðum. 80 og 96 sentímetra laxar eru komnir á land og nokkrir misstir. Ljósmynd/Gíslastaðir

Kjartan Antonsson var við veiðar á Gíslastöðum um helgina og lýsir svæðinu sem „Hvílíka paradísin sem þetta er.“ Kjartan og félagar lönduðu sex löxum. Fimm tóku fluguna Zeldu en sá dýrmætasti var maríulaxinn sem Ástdís Ósk Ottósdóttir landaði á spón. Kjartan segir frá því að Ástdís hafi verið orðin blaut í fæturna og spurði pabbi hennar hana hvort hún vildi ekki fara upp í hús og hlýja sér. Hún svaraði; „Ég fæ engan fisk þar.“ Hún hafði svo sannarlega rétt fyrir sér og fékk maríulaxinn skömmu síðar, öllum til mikillar ánægju.

Einar Páll segir að eftirspurnin sé svo mikil að langur listi sé kominn fyrir næsta ár. „Þeir ganga hins vegar fyrir sem voru í ár.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert