Eftir mjög rólegt sumar þá hefur Vatnsá, sem fellur úr Heiðarvatni loksins tekið við sér. Frá þriðja september hafa fjörutíu laxar veiðst og telst það gott á mælikvarða Vatnsár og jafnvel fleiri laxveiðiáa.
„Þetta bara gerðist um mánaðamótin. Holl sem hafði verið að veiðum í tvo daga og átt rólega byrjun, en allt i einu varð þetta bara önnur á. Það var lax og birtingur um allt og menn voru í hörku lífi,“ sagði Ásgeir Arnar Ásmundsson, sem annast sölu á leyfum í Vatnsá og Heiðardal.
Hann telur að þegar upp verði staðið muni þetta verða ár verða undir meðaltali í Vatnsá, í ljósi þess að lax og birtingur kom óvenju seint á svæðið. Hann er hins vegar að vonast til þess að Vatnsá fari í hundrað laxa.
Veiðin í Heiðarvatni fór mjög vel af stað í vor en leið svo aftur fyrir að þegar leið á sumar að sjóbirtingur var mjög seinn á ferðinni. Nú er hins vegar allt komið á eðlilegt ról og erlendir veiðimenn sem voru í vatninu gerðu þar flotta veiði. Lönduðu níu birtingum á bilinu 55 til 77 sentímetrar. Þá fengu þeir fjöldann allan af smærri urriðum og voru hinir kátustu eftir daginn.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |