Nýr rekstraraðili hefur tekið við Norðurá. Samningur þess efnis var undirritaður í gær í veiðihúsinu við Norðurá. Einar Sigfússon hefur verið sölustjóri þar frá árinu 2013. Hann ákvað að segja þetta gott og leitaði stjórn veiðifélags Norðurár samninga við nýja umsjónaraðila.
Í fréttatilkynningu sem veiðifélag Norðurár sendi frá sér í tilefni þessa segir:
„Í gær undirrituðu Guðrún Sigurjónsdóttir fyrir hönd Veiðifélags Norðurár og Rafn Valur Alfreðsson f.h. FHD ehf. samning um sölu og umsjón Norðurár til næstu fimm ára. Samningurinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Munaðarnesi í gærkvöldi.
Rafn Valur, eða FHD ehf., hefur rekið Miðfjarðará í rúman áratug við góðan orðstír. Formaður veiðifélags Norðurár, Guðrún Sigurjónsdóttir sagði af þessu tilefni:
„Það var samþykkt á aðalfundi félagsins í vor að leita að söluaðila til að selja ána með líku fyrirkomulagi og gert hefur verið síðan 2013. Margir sýndu því áhuga að koma að rekstri árinnar og ræddi stjórnin við marga aðila. Niðurstaðan var að semja við Rafn í Miðfjarðará um að taka að sér sölumálin. Við gerum ráð fyrir lítillega breyttu fyrirkomulagi og fækkum stöngum aðeins og stækkum veiðisvæði,“ upplýsti Guðrún í samtali við Sporðaköst.
Þetta er eitt verst varðveitta leyndarmál í veiðiheiminum í dag, en hefur loks fengið fullnustu.
Í fréttatilkynningu um málið er eftirfarandi haft eftir Rafni í Miðfirði: „Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu verkefni á sama tíma og ég er afar stoltur yfir því trausti sem landeigendur í Norðurá sýna mér. Ég hef alla tíð lagt mikinn metnað í minn rekstur og það að Norðurá sé nú innan minna vébanda mun efla mig og félag mitt til að gera enn betur. Hér er mikil saga og Norðurá á sér mjög stóran hóp aðdáenda þannig að ég er að taka við góðu búi. Við höfum fengið til liðs við okkur Brynjar Hreggviðsson sem er reyndur sölumaður og mun aðkoma hans styrkja okkur enn frekar.“
Norðurá gaf mun betri veiði í sumar en síðustu tvö ár. Fyrirhugaðar eru miklar seiðasleppingar og hrognagröftur þannig að ljóst má vera að stórhuga markmið hafa verið sett í Norðurárdal.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
100 cm | Mýrarkvísl | Tim Racie | 23. júlí 23.7. |
102 cm | Víðidalsá | Ragnheiður Þengilsdóttir | 14. júlí 14.7. |
106 cm | Laxá í Aðaldal | Kristrún Ólöf Sigurðardóttir | 8. júlí 8.7. |
100 cm | Blanda | Patrick Devennie | 20. júní 20.6. |
100 cm | Kjarrá | Sigurður Smári Gylfason | 19. júní 19.6. |
Veiðiárið 2023: | |||
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |