Það var sannkölluðu veiðistemming á útgáfuhófi Haugsins í versluninni Veiðiflugum nú síðdegis. Sigurður Héðinn og útgáfufyrirtækið Drápa buðu til hófsins í tilefni af því að nýja bók Sigurðar Héðins er kominn í verslanir. Þetta er bókin Veiði, von og væntingar.
Höfundur áritaði bókina fyrir fyrstu kaupendur og fjölmargir veiðimenn og konur lögðu leið sína á Langholtsveginn til að samfagna með Sigurði.
Reiða öndin, eða Þorbjörn Helgi færði Sigurði Héðni forláta fluguveski með flugum eftir nokkra af gömlu meisturunum. Þar mátti meðal annars sjá flugu sem Kristján Gíslason hafði sjálfur hnýtt og aðra eftir Rafn Hafnfjörð og Analíus Hagvaag. Þetta gladdi hnýtarann og rithöfundinn ákaflega og kallaði hann veskið dýrgrip.
Margir af veiðifélögum Haugsins settu upp sparigrímuna og mættu á staðinn. Þar mátti meðal annars sjá veiðitvíburana, Gunna og Ása. Nýráðinn viðburðarstjóra SVFR, mótorhjólatöffarann úr Ófærð, Atla Bergmann og son. Rithöfundinn Jón G. Baldvinsson, Odd Hjaltason og fleiri og fleiri. Þetta er fjórða veiðibókin sem staðfest er að kemur út fyrir þessi jól. Aðrar eru Gengið til rjúpna, Dagbók urriða, Norðurá enn fegurst áa. Gestum varð að orði að helst þyrftu menn að lesa allar þessar bækur þegar framundan væri lítið annað en biðtími eftir næsta veiðitímabili.
Í formála bókarinnar segir Sigurður Héðinn. „Þessa bók ætla ég að tileinka hinu dásamlega veiðimannalífi og ekki síður villta laxinum okkar. Ég vona svo innilega að við berum gæfu til að rétta hlut hans og að hann öðlist þá virðingu sem hann á skilið.“
Drjúgur hluti bókarinnar, sem er sú þriðja í röðinni hjá Haugnum fer í uppskriftir af flugum. Bæði klassískum flugum og einnig minna þekktum. Uppskriftir fylgja hverri flugu og skýringamyndir.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |