Fréttin fyrr í dag um að urriðar í Mýrarkvísl og Laxá í Aðaldal séu stútfullir af ánamaðki hefur vakið mikla athygli. Það var hann Matthías Þór Hákonarson leigutaki og veiðileiðsögumaður sem sagði okkur frá þessu.
Mörgum hefur þótt þetta afar merkilegt þó að þetta séu gömul sannindi. Við báðum þess vegna Matta um að taka myndir fyrir okkur af þessu fyrirbæri. Það var auðsótt mál og hann sendi okkur nokkrar myndir.
Það sem er að gerast er að þegar árnar eru vatnsmiklar og naga úr árbökkum detta ánamaðkar í ána og þar bíður urriðinn og eins og sjá má af myndunum þá er urriðinn að háma þá í sig og út úr sumum þeirra hreinlega vellur ánamaðkur.
Eins og Matti sagði líka þá voru veiðimenn sem hann er með í leiðsögn að reyna hefðbundnar flugur. Straumflugur og púpur. En það var ekki fyrr en „ormaflugan“ eða Squirmy Wormy fór undir að veiðin fór virkilega að taka við sér.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |