Dagurinn í sjóbirtingsveiði á Austurbakka Ölfusár, á ósasvæðinu er sennilega sá ódýrasti sem völ er á. Stöngin kostar tvö þúsund krónur á dag og hægt er að kaupa sumarkort sem kostar átján þúsund krónur. Öll veiðileyfasala rennur til björgunarsveitarinnar. Tíu stangir eru leyfðar á svæðinu og hægt er að kaupa veiðileyfi eða sumarkort inni á veiðisöluvefnum Veiðitorg.is.
Erlendur Steinar Friðriksson eða Elli Steinar, á og rekur vefinn. Hann segir að því miður sé illa haldið utan um skráningar á veiði á svæðinu, en veiðimönnum er skylt að skrá afla eftir að veiði lýkur á rafræna veiðibók sem er inni á Veiðitorg.is.
„Björgunarsveitin Björg á Eyrarbakka fær hverja krónu af þeim veiðileyfum sem seld eru á svæðinu. Veiðisvæðið er í þeirra umsjón og við tökum ekki krónu upp í okkar kostnað. Þetta rennur óskipt til þeirra og hefur alltaf gert. Þannig að fólk er ekki bara að komast í ódýra veiði heldur er það líka að styrkja gott málefni,“ sagði Elli Steinar í samtali við Sporðaköst.
Spurður frekar út aflabrögð á svæðinu segist hann því miður vita lítið um þau. Hann merkir þó að sama fólkið kemur þarna árlega og jafnvel oft á ári og það bendi til þess að eitthvað sé að hafa. „Það má veiða á allt þarna og það er enginn kvóti. Við vitum að þetta er gríðarleg umferðarstöð fyrir fisk sem er að ganga upp þetta mikla vatnasvæði."
Svæðið er frá Óseyrarbrú, Eyrarbakkamegin og er um þrír og hálfur kílómetri. Aðgengi er þægilegt og þarna hafa margir sótt í að veiða sjóbirting.
Ægir Guðjónsson er formaður björgunarsveitarinnar sem annast svæðið. „Þetta fyrirkomulag hefur verið frá því að ég man eftir mér. Ég var bara smá polli þegar ég var að fara með pabba í veiðieftirlit á svæðinu. Fyrir björgunarsveitina skiptir þessi fjáröflunarleið svo sannarlega máli. Hún er mun auðveldari fyrir okkur en að vera með mannskap að selja neyðarkallinn eða standa í flugeldasölu,“ sagði Ægir í samtali við Sporðaköst.
Nokkur umræða varð um veiðisvæðið á facebooksíðunni Veiðidellan er frábær, í gær. Þá setti Ragnar Viðarsson inn færslu um veiðiferð einmitt á umrætt svæði. Hann og félagi hans lönduðu þremur birtingum á innan við klukkustund. Þá var einnig forvitnilegt að sjá að þeir fiskar voru færðir til bókar í rafrænu veiðibókinni sem er að finna á Veiðitorg.is. Það eru fyrstu fiskarnir sem eru færðir til bókar í vor.
Það er líka athyglisvert að sjá til að mynda að dagsstöngin í Fjarðará í Hvalvatnsfirði kostar sex þúsund krónur en þar er hægt að lenda í skemmtilegri bleikjuveiði. En svæðið er dyntótt og veiði ýmist í ökkla eða eyra. Sama er að segja um Dalsá og Tungudalsá í Fáskrúðsfirði, eða Hofsá í Vesturdal í Skagafirði, og raunar fleiri veiðisvæði sem ekki eru oft í fréttum. Fyrir veiðiþyrsta ferðalanga er vel þess virði að kíkja inn á síðuna og kanna möguleika því verði er mjög stillt í hóf.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |