„Við vorum byrjaðir að veiða rétt fyrir hálf níu og við erum búnir að landa tólf fiskum á rúmum klukkutíma. Við settum í hann á Sauðavaðinu og svo er bara veisla hér í Brotaflóanum,“ sagði Bjarni Júlíusson í samtali við Sporðaköst í morgun. Hann ásamt fleiri öflugum veiðimönnum eru að opna urriðasvæðið í Laxá í Mývatnssveit og hafa gert nú árum saman.
„Við höfum verið að kasta Holunni og með lítinn BAB sem dropper og flestir hafa verið að tala BABinn en líka Holuna. Ég man ekki eftir svona byrjun hjá okkur feðgum. Þeir sem draga Geirastaðalandið og geta byrjað í Skurðinum eru oft að gera fanta veiði en við höfum ekki lent í svona moki áður á fyrstu vakt og hún er ekki hálfnuð. Ég verð að segja að ég hef aldrei séð annað eins. Sjáðu bara,“ sagði Bjarni og setti á myndsímtal. Þá var sonur hans að slást við flottan urriða í Brotaflóanum. Eftir smá stund lak sá af en á meðan að á símtalinu stóð settu þeir Bjarnasynir í fjóra flotta urriða. „Þeir eru að taka grannt enda smáar flugur. En nú verð ég að hjálpa. Þetta er golli,“ og það síðasta sem sást til þeirra feðga var sveiflan á netinu í háfnum áður en símtalinu var slitið.
Áður höfðum við tekið stöðuna almennt. "Það er geggjaður hiti og blússandi klak og fiskur að velta sér um allt. Við vorum heppnir með drátt og lentum á Helluvaðslandinu. Brotaflóinn er frekar grunnur og svartur sandbotn og hann hitnar vel í þessu mikla sólskini.“
Magnaðir veiðistaðir eru neðar á svæðinu eins og Stekkjaskerjapollur og Steinbogaey. „Ég er ekki viss um að við nennum þangað niður eftir. Enda til hvers að færa sig þegar hér er linnulítil taka? Enda sko ég er næstum því orðlaus. Í fyrra fyrir ári síðan drógum við þetta sama svæði og vorum þá í norðan tuttugu metrum. Maður stóð varla og átti erfitt með að kasta með þetta allt í fangið. Þá særðum við upp tvo fiska á vaktinni. Við eigum enn eftir að veiða heitustu staðina í Brotaflóanum. Sko hann er aftur með hann,“ hló Bjarni.
En þessu er misskipt. Félagar þeirra byrjuðu í Arnarvatnslandi og annar þeirra var ekki búinn að fá högg en hinn hafði landað einum. Í Arnarvatnslandinu eru þó spennandi veiðistaðir eins og Þuríðarflóinn, Sandvik og margir fleiri.
Það er líka verið að opna Laxárdalinn sem er neðan við Mývatnssveitina og verður gaman að fá fréttir þaðan og fleiri sögur af efra svæðinu.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |