Opnunarhollið skilaði um 500 fiskum

Árni með pattaralegan Mývetning. Eins og sést á myndinni er …
Árni með pattaralegan Mývetning. Eins og sést á myndinni er flugan komin á kreik en hún er jú undirstaða góðrar veiði á svæðinu. Ljósmynd/JJÍ

Opnunarhollið í urriðanum í Mývatnssveit var þrír og hálfur dagur. Hófst á sunnudagsmorgun og lauk á hádegi í gær. Við höfum flutt fréttir af mikilli veiði sem hollið lenti í. Meiri veiði en þessi félagsskapur hefur áður fengið og hefur þetta holl opnað svæðið í rúman áratug.

„Þetta var eitthvað rétt sunnan við fimm hundruð fiska. Við höfum aldrei lent í svona magnaðri veiði þarna í opnun og bara yfir höfuð ekki,“ sagði Árni Friðleifsson í samtali við Sporðaköst eftir að túrnum var lokið. „Þetta lék svo allt við okkur. Fiskurinn var í flottum holdum og því sprækur eftir því. Veðrið var þannig að allir urðu sætir og sólbrúnir og veiðin maður. Bara geggjuð.“

Endur og gæsir komnar með stálpaða unga. Það er ekki …
Endur og gæsir komnar með stálpaða unga. Það er ekki einsdæmi. En það þykir snemmt. Ljósmynd/ÁF

Hann sagði að þeir félagar hefðu tekið eftir því að lífríkið var nánast á sterum. Allir angar þess á fullu að nýta birtuna til hins ýtrasta á þessu stutta sumri á norðurslóðum. Árni nefndi sem dæmi að hann sá önd með stálpaða unga og minnist þess ekki að hafa séð það áður í maí. Aðrir sáu gæsir með unga og bar mönnum saman um að vorið væri allt að tíu dögum fyrr á ferðinni en menn ættu að venjast.

Það var hálfgerð Tenestemming hjá hollinu. Menn fáklæddir og sólin …
Það var hálfgerð Tenestemming hjá hollinu. Menn fáklæddir og sólin sparaði sig ekki. Árni og Jóhann Jón Ísleifsson í góðum gír. Ljósmynd/ÁF

„Við Jóhann félagi minn vorum með eitthvað í kringum fimmtíu fiska. Við höfum á þessum tíma áður oft verið að fá milli tuttugu og þrjátíu. Það voru öll svæði að gefa veiði. Misjafnt milli vakta en við forum alltaf í veiði,“ sagði Árni.

Falleg kvöldbirta í Mývatnssveit og ekki skemmir fyrir að hann …
Falleg kvöldbirta í Mývatnssveit og ekki skemmir fyrir að hann er á. Ljósmynd/ÁF

Eftirtektarvert er hversu silungurinn hefur farið vel af stað víða. Þannig hefur Elliðavatn og Vífilsstaðavatn verið að gefa ágæta veiði frá því að vatnið opnaði og hefur bleikjuveiðin í Elliðavatni verið betri en oft áður. Fyrsti laxveiðidagurinn í gær í Urriðafossi stóð algerlega undir væntingum og skilaði sautján löxum á land. Engin á í Evrópu sem Sporðaköst hafa heyrt af státar af slíku laxamagni á fyrsta degi. Hvort sem er í Skotlandi, Írlandi eða í Skandinavíu. Laxinn er farinn að sjást víða og almennt virðist hann vera aðeins fyrr á ferðinni og vonandi veit það á gott.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert