Fjórir laxar úr Þverá á fyrstu vakt

Davíð Másson með þann fyrsta úr Þverá sumarið 2022. Í …
Davíð Másson með þann fyrsta úr Þverá sumarið 2022. Í baksýn er kirkjan enda veiðistaðurinn kenndur hana. Þrír laxar komu á land í morgun. Ljósmynd/DM

Veiði hófst í Þverá í Borgarfirði í morgun og veiddist fyrsti laxinn í Kirkjustreng sem er með þekktari veiðistöðum í Þverá. Það var Davíð Másson einn af leigutökum árinnar sem landaði þeim fyrsta. Þegar leið á morguninn var sett í lax í streng ofan við Þórunnarhyl og honum landað. Klettshylur gaf svo þann þriðja skömmu fyrir hádegi. Af þessum staðsetningum má ljóst vera að lax er nokkuð dreifður og væntanlega veit þetta á gott.

Uppfært

Sigurður Hannesson með fallegan stórlax sem tók rétt fyrir klukkan …
Sigurður Hannesson með fallegan stórlax sem tók rétt fyrir klukkan eitt í Kirkjustreng. Þessi hængur mældist 91 sentímetri. Sá stærsti í sumar. Ljósmynd/SH

Við neyddumst til að breyta fyrirsögn á fréttinni því rétt fyrir klukkan eitt var sett í 91 sentímetra stórlax í Kirkjustreng og var honum landað eftir mikla viðureign. Það var sá fjórði og stærsti í morgun. Þetta er orðin frábær vakt í Þverá því fyrirfram renndu menn ofurlítið blint í sjóinn þar sem enginn fiskur hafði sést, en erfitt er að skyggna Þverá við þau skilyrði sem verið hafa. Það var Sigurður Hannesson sem landaði stórlaxinum í Kirkjustreng.

Birgir Bieltvedt með laxinn úr Klettsfljóti. Hann mældist 84 sentímetrar.
Birgir Bieltvedt með laxinn úr Klettsfljóti. Hann mældist 84 sentímetrar. Ljósmynd/SEI

Mikið vatn er í Þverá og góð skilyrði fyrir laxinn til að strika hratt í gegn og upp á efra svæðið eða í Kjarrá, en veiðihefst þar á fimmtudag.

Styrmir Elí Ingólfsson sem er við veiðar í Þverá sagði í samtali við Sporðaköst að hann hefði séð lax stökkva í Klapparfljóti og aðstoðaði við löndun á laxinum í Klettsfljóti.

Fiskurinn sem Davíð Másson veiddi var um áttatíu sentímetrar og eins og gefur að skilja silfurbjartur. Dæmigerður tveggja ára lax úr Þverá. Hinir tveir voru áþekkir, fyrir svo utan þann fjórða sem er sá stærsti sem við höfum heyrt af í sumar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert