Eystri – Rangá opnaði í morgun, en enginn lax veiddist á fyrri vaktinni. Menn voru samt alveg upplitsdjarfir og þóttust vissir um að sá silfraði væri mættur. Það fékkst svo staðfest nú síðdegis þegar Alexander Arnarson málari mætti á svæðið á seinni vaktina. Hann átti Bátsvaðið og mjög fljótlega setti þessum fyrrum landsliðsmaður í handknattleik í hörkufisk. Eftir drjúga viðureign landaði hann 92 sentímetra fiski og Eystri – Rangá er komin á blað.
Laxi númer tvö í vor var landað í Mýrarkvíslinni í gær. Einn hafði deginum áður farið af við háfinn í löndun. Það sem er spennandi við þetta, er að laxinn er óvenju snemma á ferðinni í kvíslinni þetta árið. Sporðaköst báru þetta undir Matthías Þór Hákonarson leigutaka. Hann sagðist ekki muna eftir tveimur löxum í júní frá því árið 2016. „Hvort að þetta er einhver fyrirboði skal ég ekki segja til um,“ sagði Matthías.
Margir minnast enn ársins 2016 enda var það mjög gott veiðiár og óvenju mikið var af stórlaxi. Þannig urðu Nesbræður í Aðaldal nánast uppiskroppa með 20 punda nælur það sumarið sem veiðimenn fá við að landa slíkum fiski.
Fiskar hafa sést í Laxá fyrir neðan Æðarfossa í Kistukvíslinni. Jón Helgi Björnsson upplýsti það á facebook síðu sinni. Big Laxá, eins og útlendingar kalla hana, opnar næstkomandi mánudag, þann 20.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |