Það er mikið um að vera í laxveiðinni þessa dagana og margar ár að opna. Í dag eru það Ytri – Rangá, Víðidalsá, Vatnsdalsá og Laxá í Aðaldal. Um helgina voru opnaðar Langá, opnunarhollið í Laxá á Ásum og Hítará lauk. Og svo er náttúrulega borgarperlan að opna í dag.
Fyrsti laxinn úr Ytri – Rangá kom úr veiðistaðnum Borg og var þar að verki Klaus Vander. Hann landaði 85 sentímetra hrygnu og er það fyrsti laxinn úr Ytri í sumar. Harpa Hlín Þórðardóttir sem annast rekstur og sölu á ánni sagði að snemma í morgun hefðu tveir laxar verið misstir en greinilegt að laxinn væri mættur á Rangárflúðir, sem er einn af lykilveiðistöðum í Ytri og beint fyrir neðan veiðihúsið. En þar lak einmitt einn af í morgun.
Veiðihjónin, Stefán Sigurðsson og Harpa lentu svo sannarlega í ævintýrum. Fyrst landaði Stefán 97 sentímetra hæng og Harpa setti í einn stóran og missti. Það kom þó ekki að sök því fljótlega setti hún í annan og landaði honum. Það er fjör í Ytri og greinilegt að eitthvað er komið af tveggja ára fiski. Nú síðast fréttum við 78 sentímetra hrygnu sem var landað í Djúpósi.
Veiði hófst í Víðidalsá í morgun og voru í það minnsta tveir laxar komnir á land fyrir hádegi, annar úr Fitjá og hinn í Harðeyrarstreng.
Reykvíkingar ársins voru mætt til veiða í Elliðaánum í morgun og hún Kamila Walijewska náði þar í maríulaxinn sinn með dyggri aðstoð Stefáns Karls Segatta sem var leiðsögumaður. Laxinn veiddist á Breiðunni fyrir neðan brú og var þar á ferðinni smálax. Mikið líf hefur sést í Elliðaánum síðustu daga og töluvert af fiski sést á ferðinni.
Langá á Mýrum opnaði í gær og Sporðaköst höfðu fregnir af tveimur löxum þaðan. Tónlistarmaður Jógvan Hansen var að veiða þar og sagði veðrið ekki leika við þá en gleðin væri samt alls ráðandi. Báðir fiskarnir veiddust á Breiðunni. Þá greindi visir.is frá því að sex laxar hefðu veiðst í opnun Hítarár. Opnunarhollið í Laxá á Ásum landaði einum laxi og voru það töluverð vonbrigði þar sem sést hafði til laxa í göngu síðustu daga.
Vatnsdalsá byrjar ekki fyrr en seinni partinn í dag. Frekari fréttir af opnunum koma síðar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |