Það var stór opnunardagur í laxveiðinni í gær. Hér er að finna yfirlit yfir hvernig gekk og hverju opnanir skiluðu. Við byrjum í borginni en Elliðaárnar opnuðu í gær við trylltan fjölmiðladans, eins og ávallt. Þegar upp var staðið komu ellefu laxar á land þennan fyrsta dag. Af þeim voru tveir tveggja ára laxar en níu smálaxar. Hundasteinar gáfu fjóra laxa, Breiðan þrjá, Árbæjarhylur tvo og Hraun og Símastrengur sinn hvorn. Fjórir veiddust fyrir hádegi og sjö á seinni vaktinni.
Lífleg opnun var í Víðidalsá og veiddust alls átta laxar. Fjórir fyrir hádegi og fjórir á seinni vaktinni. Allt voru þetta tveggja ára fiskar og dæmi um lús og jafnvel halalús. Það ánægjulega við þessa opnun er að fiskar veiddust á þremur af fjórum svæðum árinnar og er fiskur því aðeins farinn að dreifa sér. Stærsti fiskur dagsins var 94 sentímetra hrygna sem Þorsteinn Sverrisson veiddi í veiðistaðnum Dæli.
Margir biðu spenntir eftir opnunardeginum í Laxá í Aðaldal eftir að nokkuð hafði sést af fiski á neðsta svæðinu, bæði í Bjargstreng og í Kistukvíslinni. Skilyrði voru frekar leiðinleg að sögn Jóns Helga Björnssonar Laxamýrarbónda. Einn lax kom á land og veiddist hann á Mjósundi og mældist 86 sentímetrar. Tók hann Sunray og það var Arnar Gauti Guðmundsson sem veiddi hann. Á sama tíma er Mýrarkvíslin að greina frá veiddum löxum nánast daglega. Þannig veiddist 75 sentímetra hrygna í Brúarhyl og svo misstu sömu veiðimenn annan lax í Túnapolli og eru margir gapandi yfir laxveiðinni í júní í Mýrarkvísl.
Deildará og Fljótaá opnuðu í gær og skiluðu báðar tveimur löxum á opnunardegi. Athygli vekur í Deildará að laxinn var mættur þar mjög snemma og var staðfest að lax sást stökkva þar 29. maí. Annar laxinn sem veiddist var enda farinn að taka umtalsverðan lit á meðan að hinn var silfurbjartur.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |