Bati í Blöndu, „útdauðir“ laxar og vídeó

Eftir hreint út sagt afleita byrjun á laxveiðitímabilinu í Blöndu er loks að rofa til. Þannig gaf morgunvaktin í morgun sex laxa á bilinu 82 til 95 sentímetrar. Þrír fiskar komu á land í gær og var sá stærsti 93 sentímetrar. Einnig var nokkuð um að veiðimenn væru að missa laxa.

Skotinn William Stephen með 95 sentímetra lax af Breiðu suður …
Skotinn William Stephen með 95 sentímetra lax af Breiðu suður í Blöndu nú í morgun. Þar er loksins fiskur að mæta og veiðin hefur batnað. Ljósmynd/RH


Róbert Haraldsson yfirleiðsögumaður í Blöndu sagði að hluti af fiskunum hafi verið lúsugir og þá var það einnig gleðiefni að fyrsti laxinn veiddist á efri svæðunum. Vonandi veit þetta á gott með framhaldið því margir voru búnir að afskrifa tveggja ára laxinn í Blöndu.

Mark Siipola frá Bandaríkjunum skælbrosandi með Blöndulax sem mældist 82 …
Mark Siipola frá Bandaríkjunum skælbrosandi með Blöndulax sem mældist 82 sentímetrar. Ljósmynd/RH


Erlendir veiðimenn frá Skotlandi og Bandaríkjunum voru í skýjunum með þessa veiði enda hefur verið afar rólegt í Blöndu fram til þessa.

Stór stund fyrir Dag Ólafsson. Hann fékk tuttugu punda næluna …
Stór stund fyrir Dag Ólafsson. Hann fékk tuttugu punda næluna afhenta í gærkvöldi fyrir laxinn sem mældist 102 sentímetrar. Árni Pétur Hilmarsson afhenti gripinn. Ljósmynd/ÁPH

Slegist við hundraðkall

Við sögðum í gær frá hundraðkallinum sem hinn fimmtán ára gamli Dagur Ólafsson landaði í Laxá í Aðaldal með pabba sínum. Mældist laxinn hvorki meira né minna en 102 sentímetrar. Eins og venjan er fékk Dagur tuttugu punda næluna en með fréttinni fylgir einmitt myndband sem tekið var af þessari viðureign. Stöngin er stór og öflug og það eru þeir feðgar einnig og það á svo sannarlega líka við um þennan stærsta lax sem komið hefur úr Laxá sumar.

Atli Freyr með 99 sentímetra laxinn úr Kjarrá. Þeir félagar …
Atli Freyr með 99 sentímetra laxinn úr Kjarrá. Þeir félagar höfðu kvöldið áður gert grín af því að þessir fiskar væru útdauðir. Blóðið á vinstri hendi Atla er úr honum sjálfum eftir að hafa hruflað sig á laxatönnum. Ljósmynd/AFB

Fengu einn „útdauðan“

Atli Freyr Bergsson og félagar voru að veiða í Kjarrá í síðasta holli. Síðasta kvöldið voru þeir að ræða stærðir á löxum og bar þeim saman um að 99 sentímetra laxinn væri útdauður. Hann væri allavega ekki að veiðast. Morguninn eftir átti Atli Freyr meðal annars veiðistaðinn Runka. Eftir dágóða stund tók hjá honum afar stór fiskur og eftir langa og stranga baráttu var honum landað. Þessi lax var stífmældur og var nákvæmlega 99 sentímetrar. Atli Freyr hafði gaman af og voru félagar fegnir að sjá slíka tölu og þar með staðfestingu á því að 99 sentímetra laxar eru ekki útdauðir.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert