Smálaxinn er víða farinn að ganga af nokkrum krafti í ár á Vesturlandi. Þetta er hefðbundinn tími fyrir hann og veiðitölur í mörgum ám eru að taka kipp núna. Nú eiga að fara í hönd bestu vikurnar í Borgarfjarðaránum.
Þetta sást greinilega í þverá í síðasta holli sem veiddi dagana 27. – 30. júní. Hollið landaði 59 fiskum og var þar að lang stærstum hluta um smálax að ræða og voru margir lúsugir. Styrmir Elí Ingólfsson starfsmaður Stara ehf sem leigir Þverá sagði að veiðimenn í hollinu hefðu verið að missa mikinn fjölda af löxum líka. „Mikið var um lúsugan fisk og hann var á víð og dreif um ána,“ sagði Styrmir í samtali við Sporðaköst.
Ef við tökum 29. júní sem dæmi þá veiddust í Þverá 26 laxar og af þeim voru 20 smálaxar. Norðurá er líka að sjá þessa dagana hressilegar göngur af smálaxi. Í gær veiddust 24 laxar í Norðurá og af þeim voru þrír tveggja ára en rest var smálax. Brynjar Þór Hreggviðsson staðarhaldari í Norðurá sagði mikið af fiski að ganga þessa dagana. „Einn leiðsögumaðurinn sagði við mig að áin væri blá af laxi frá Eyrinni og niður í Bryggjur,“ sagði Brynjar.
Blá á af laxi er borgfirsk lýsingu á miklum laxagöngum.
Laxá í Kjós var að sjá smálaxagöngur í gær og því til staðfestingar veiddust tólf slíkir á neðsta svæði árinnar í gærmorgun.
Þó svo að allir fagni smálaxinum og hans komu í árnar þá er stutt í stress hjá mörgum. Síðustu þrjú ár hafa verið töluvert langt undir meðaltalsveiði á Vesturlandi. Eins og einn leigutaki orðaði það í samtali við Sporðaköst í vor. „Nú verðum við að fá góða veiði. Ég get ekki bara málað veiðihúsið einu sinni enn.“
Smálaxinn er líka að mæta í Elliðaárnar og þar segja kunnugir að útlitið sé gott. Laxá í Leirársveit er líka á góðri siglingu.
Í gær var stærsti straumur og er það ávísun á auknar laxagöngur. Það sem allir vonast eftir er að smálaxagöngurnar verði kröftugar og skili betri veiði en síðust þrjú ár. Það mun sjást á næstu dögum hvort forsendur eru fyrir því.
Fyrstu smálaxarnir eru að mæta á Norðurlandi en krafturinn í þeim göngum ætti að gerast í næsta stóra straumi sem er um miðjan mánuðinn.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |