Laxveiðin í Hvítá og Ölfusá er komin á fullt. Mörg svæði hafa verið að gefa laxa síðustu daga. Þannig kom fyrsti laxinn á Gíslastöðum í Hvítá í gær og var það 12,5 punda fiskur sem Bjarni Blomsterberg landaði.
Fyrsti laxinn sem Sporðaköst vita um í Stóra – Ármóti í Hvítá kom líka á land í gær og var þar að verki Helga Gísladóttir SVFR – kona sem fékk 65 sentímetra grálúsugan fisk. Það er kannski til marks um aukna laxagengd á svæðinu eftir netauppkaup að Helga skrifaði; „Búin að veiða í Hvítá í mörg ár og aldrei tekist að setja í lax fyrr en nú.“
Nokkru neðar eða þar sem Hvítá hefur innbyrt Sogið og hún er orðin Ölfusá er nýtt tilraunasvæði í fluguveiði nú opið veiðimönnum. Tommi Za var að veiðum þar í gær og setti í þrjá laxa og landaði tveimur. Báðir fengu líf. Svæðið er í bakgarðinum á Selfossi og nær langleiðina niður að brú. Þetta svæði hefur ekki áður verið opið fyrir stangveiði og hafa netabændur séð um að veiða það.
Enn neðar þar sem Stangaveiðifélag Selfoss ræður ríkjum var búið að veiða tólf laxa og þrettán sjóbirtinga þann 29. júní. Arnar Bjarnason hafði heiðurinn að því að veiða fyrsta laxinn á svæði SVFS. Sjóbirtingsveiði hefur snaraukist á svæðinu síðari ár og lengir það veiðitímabilið svona neðarlega á vatnasvæðinu.
Svo getur farið að vatnasvæði Hvítár og Ölfusár verði eitt mest spennandi veiðisvæði landsins ef áform og væntingar varðandi netauppkaup ganga eftir. Sogið, Tungufljót og Stóra – Laxá eru allar hluti af þessu víðfeðma svæði og hafa allar þessar ár byrjað vel í sumar.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |