Stórar smálaxagöngur mættu í Langá

Veiðimaður kastar á Strengina í Langá. Mikið magn af smálaxi …
Veiðimaður kastar á Strengina í Langá. Mikið magn af smálaxi hefur gengið síðasta sólarhinginn í ána. Morgunblaðið/Einar Falur

Yfir tvö hundruð laxar gengu í gegnum teljarann við Skuggafoss í Langá síðasta sólarhringinn. Þórður Arnarson, veiðivörður og staðarhaldari við Langá staðfesti þetta í samtali við Sporðaköst. Sagði hann að einnig væri töluvert um að lax gengi sjálfan fossinn og kæmi þar af leiðandi ekki fram á teljaranum.

„Þetta er að skila sér strax inn í veiðina og það komu 24 á land í morgun. Það er besta vaktin okkar til þessa. Auðvitað er gaman að sjá þetta og manni finnst að við eigum svolítið inni frá síðustu árum,“ sagði Þórður í samtali við Sporðaköst.

Hann var að bægja erlendum ferðamönnum frá ánni skammt neðan við fossinn og sagði hann merkingar um bannað aðgang engu skipta. En eins og fyrr segir voru fleiri á ferðinni en bara ferðamenn og sagði Þórður smálaxinn á fleygiferð. Aðspurður hvernig smálaxinn liti út sagði hann laxinn vera smáan. „Þó er ein mikil og breyting frá því í fyrra. Nú er tökugleði í laxinum en því var ekki að heilsa í fyrra. Það er eins og þessi árgangur sé með einhver önnur gen og vonandi veit þetta á gott.“

Lax er nú að dreifast um alla á og ljóst að veiðin á bara eftir að aukast í Langá á næstu dögum. 45 laxar eru gengnir í gegnum teljarann í Sveðjufossi mjög ofarlega í ánni.

Langá var komin með 104 laxa á miðvikudagskvöld en til samanburðar var sú tala 75 laxar á sama tíma í fyrra. Þórður er að vonast eftir því að fá meðal ár í sumar, veiðilega séð í Langá. Gangi það eftir yrði veiðin langleiðina í tvö þúsund laxa. Nú er best að krossleggja fingur.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert