Stærsti lax sumarsins til þessa í Jöklu, veiddist í gær. Var þar að verki stórlaxahvíslarinn Nils Folmer Jorgensesen sem landað hefur ófáum hundraðköllum. Nils lýsti deginum í samtali við Sporðaköst. „Ég átti ekki von á miklu þennan dag. Áin frekar lituð og mjög vatnsmikil. Óveður sem hafði verið fyrir austan hafði haft mikil áhrif á margar ár og voru þær komnar í kakó. Ég varð því sérlega ánægður og jafnvel hissa þegar í öðru kasti áttatíu sentímetra fiskur kom upp í yfirborðið og tók HKA Sunray sem ég var með. Skömmu síðar fékk ég annan og var hann 86 sentímetrar,“ sagði Nils.
Hann segir að þegar leið á dag hafi farið að hellirigna og þeir félagar ekki átt von á miklu öðru en að verða gegnblautir. Þeir komu á Hólaflúð sem er einn nafntogaðasti veiðistaður Jöklu. Þrátt fyrir vatnsveðrið lönduðu þeir félagar tveimur smálöxum og voru bara orðnir býsna kátir.
„Ég fékk svo svakalega töku og það var fiskur sem ég barðist við í fjörutíu mínútur í þessu mikla vatni. Þegar upp var staðið reyndist þetta vera lúsugur hængur og silfurbjartur. Ég var búinn að giska á 90 sentímetra en hann reyndist vera 102 þegar við mældum hann. Ég er alsæll,“ upplýsti Nils.
Jökla er komin með ríflega hundrað laxa og er það svipuð veiði og í fyrra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |