„Ég byrjaði bara að veiða í lok sumars 2018 og það má segja að ég hafi verið ákaflega lukkuleg með þessa stórfiska,“ sagði Kristrún Ólöf Sigurðardóttir í samtali við Sporðaköst í gærkvöldi. Hún var þá að búa sig undir að taka við tuttugu punda nælu í Laxá í Aðaldal. Þetta er önnur nælan sem hún fær þar en fyrir sléttum tveimur árum landaði hún 102 sentímetra laxi á Lönguflúð. Það var hennar annar hundraðkall en þann fyrsta fékk hún í Noregi.
Svo gerðist það í gær að Kristrún fékk sinn þriðja hundraðkall. Þau hjónin eru með ellefu mánaða dóttur sína með sér þannig að þau skipta vöktunum og Kristrún fór ekki út fyrr en klukkan níu um morguninn. Hún var að veiða með Kristjáni Arnarsyni leiðsögumanni frá Húsavík og þau voru stödd á Fossavaði sem er veiðistaður við hliðina á Mjósundi, fyrir ofan Kistukvíslina í Laxá. „Kristján mælti með skáskornum Skugga, litlum. Mér leist vel á það og bara eftir nokkur köst tók hjá mér fiskur sem reyndist 81 sentímetra hrygna. Það var sko alveg alvöru viðureign. Hún ætlaði niður og ég þurfti að fara út í eyjuna og hlaupa eftir henni til að lína myndi ekki flækjast í gróður eða grjót. Eftir að hún var komin í net sagði Kristján við mig, „Jæja. Nú förum við og tökum hænginn.“ Svo hlógum við bara. Þegar allt var klárt kasta ég aftur á sama stað og það voru bara nokkur köst og þá kom þessi frekar rólegheita taka. Ég sagði við Kristján að ég væri nú ekki viss um að þessi væri jafn stór og hinn. Nokkrum sekúndum seinna rauk hann af stað,“ sagði Kristrún hlæjandi. Hún hermir eftir veiðihjólinu og gefur frá sér hljóð sem er mitt á milli Hardy og nýrri tegunda.
Fiskurinn tók mikla roku og stökk svo tignarlega. „Jú. Þessi er stærri en sá fyrri.“ Og það reyndist rétt. Eftir tuttugu mínútna baráttu og nokkrar hressilegar rokur og stökk náðist að háfa laxinn. „Ég leit ofan í háfinn og missti út úr mér ó mæ god. Hann var mikið stærri. Hann var svo þungur að ég náði varla að halda honum almennilega fyrir myndatökuna. Þetta var svo flottur fiskur og ég alveg spriklaði af gleði eftir þessa vakt.“
Laxinn mældist sléttir hundrað sentímetrar. Kristján leiðsögumaður var beðinn um að staðfesta mælinguna. „Já passar. Sléttir hundrað og margmældur.“
Hundraðkallinn sem Kristrún fékk í Noregi var 105 sentímetrar. Norsku leiðsögumennirnir kölluðu hana eftir það Big fish Kris. Það er óhætt að segja að það nafn hafi verið vel til fundið. Allavega átti það við í gær.
Kristrún sagði að af þessum stórfiskum sem hún hefur tekist á við þá var þessi í gær sá auðveldasti og tók stystan tíma. „Hann keyrði harkalega inn í sef og eftir það var eins og hann væri hálf vankaður og það held ég að hafi stytt tímann. Annars er það svo magnað að þegar maður er að veiða þá er maður svo spenntur að maður man þetta ekki í smáatriðum og ég var bara einhvern veginn sturluð af gleði með þessa tvo fiska á bara stuttum tíma.“
Þetta er annar veiðitúrinn sem Kristrún fer í Laxá í sumar. Fyrri túrinn var snemma í júlí og þá gafst henni lítill tími til að veiða. „Ég var frekar mikið í húsi og við vorum með litlu dömuna okkar með okkur. Þegar leið á veiðitúrinn fór ég að verða æstari í að komast út að kasta. En ég núllaði í því holli og fór með tárin í augunum heim. En ég sagði að þessi stóri biði eftir mér þar til ég kæmi næst. Og það stóðst,“ hló Kristrún.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |