Þrátt fyrir úrhelli, rok, rigningu og þrumuveður héldu veiðimenn í Ytri – Rangá kappsfullir til veiða í morgun. Við lok veiðidags í gær kom í ljós að 1.999 löxum hafði verið landað. Mikil spenna ríkti því í morgun hvaða stöng næði laxi númer tvö þúsund. „Það ætluðu sko allir að ná honum. Ég sat heima í sófa og fylgdist með öllum veiðimönnum og fékk upplýsingar frá leiðsögumönnum. Nokkrir misstust áður en tvö þúsundasti laxinn kom á land,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir, hjá Iceland Outfitters í samtali við Sporðaköst í morgun.
Það voru ensku veiðifélagarnir Mark Coley og David Edsell sem lönduðu svo þessum merkilega laxi og báru sigur úr bítum í þessari óopinberu keppni. Leiðsögumaðurinn þeirra var Matthías Sigurðsson og veiddist laxinn á Klöppinni, sem er veiðistaður fyrir neðan Ægisíðufoss. Mark Coley fékk laxinn á appelsínugula Snældu. Fallegur smálax og þeir félagar glöddust. Bæði að hafa skákað hinum sautján stöngunum og svo var þessi smálax afskaplega fallegur og nýgenginn.
Veiðin í Ytri hefur verið umtalsvert betri en í fyrra. Þannig veiddist lax númer tvö þúsund 24. ágúst í fyrra eða hálfum mánuði síðar en nú. Spennandi verður að sjá í hvaða tölu Ytri endar en lokatalan í fyrra var 3.437 laxar sem telst frekar slök veiði þar miðað við þær tölur sem sést hafa úr Ytri – Rangá.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |