Haustlegar tölur í laxveiðinni

Breskur veiðimaður tekst á við lax í Laxárholti í Stóru …
Breskur veiðimaður tekst á við lax í Laxárholti í Stóru - Laxá. Heildartalan þar er nú 608 laxar en var á sama tíma í fyrra 442. Ljósmynd/ÞS

Afskaplega rólegt var yfir laxveiðinni í síðustu viku. Má segja að það sé heilt yfir landið og einu árnar sem voru að skila þokkalegri veiði voru á NA – landi. Topp fimmtán listinn er lítið breyttur frá síðustu viku. Rangárnar eru að gefa þokkalega veiði miðað það sem menn eiga að venjast þar á bæ. Ytri – Rangá er þó sínu betri. Vikuveiðin þar var 240 laxar en í Eystri var 154 laxar.

Miðfjarðará er enn að gefa þokkalega veiði en þar komu á land 94 laxar. Vesturlandið var að öðru leiti mjög rólegt.

Við birtum hér topp fimmtán listann og í sviga fyrir aftan er fjöldi laxa sem höfðu veiðst á sama tíma í fyrra.

1. Ytri – Rangá og Vesturb. Hólsár 3.261 (2.387) Vikuveiði 240

2. Eystri – Rangá 2.522 (2.218) Vikuveiði 154

3. Þverá/Kjarrá  1.290 (1.193) Vikuveiði 46

4. Norðurá 1.236 (1.285) Vikuveiði (Liggur ekki fyrir)

5. Miðfjarðará 1.207 (1.307) Vikuveiði 94

6. Hofsá 1.015 (494) Vikuveiði 80

7. Selá 977 (653) Vikuveiði 85

8. Urriðafoss 943 (823) *Vantar tölur fyrir síðustu viku

9. Langá  825 (660) Vikuveiði 50 

10. Haffjarðará 774 (782). Vikuveiði 52

11. Laxá á Ásum 723 (506) Vikuveiði 28

12. Elliðaár 718 (527) Vikuveiði 52

13. Laxá í Kjós 657 (646) Vikuveiði 13

14. Laxá í Leirársveit 652 *Vantar nýjar tölur

15. Jökla 649 *Vantar nýjar tölur

Nú styttist í að fyrstu árnar loki. Í öðrum er hins vegar svokallaður krókódílatími að hefjast þegar stóru hængarnir fara á stjá og koma aftur inn í veiðina. Þá geta nokkrir stórir gefið sig.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert