Mynstrið í laxveiðinni er á sömu nótum og síðustu vikurnar. Rangárnar báðar gáfu góða veiði í síðustu viku og er sú Ytri nú komin yfir fjögur þúsund laxa, með vikuveiði upp á 776 fiska í síðustu viku. Þar munar að sjálfsögðu mestu um maðkaopnunina sem skilaði sjö hundruð löxum á fjórum dögum. Veiði í Eystri var líka góð með vikuveiði upp á 463 laxa.
Vopnafjarðarárnar halda áfram að gefa góða veiði og voru bæði Selá og Hofsá með flotta veiði. Miðfjörðurinn er að eiga ágætar vikur en og fór yfir áttatíu laxa í vikunni sem leið. Við birtum hér lista yfir tíu efstu árnar en hægt er að sjá tölur yfir mun fleiri ár inni á angling.is sem er vefur Landssambands veiðifélaga.
Greina má þreytu bæði í löxum og mönnum. Margur leiðsögumaðurinn er orðinn rasssíður þegar komið er fram á þennan lokasprett veiðinnar. Þreytan kemur einnig fram í því að sífellt fleiri ár senda ekki veiðitölur inn til angling og þá verður listinn bæði ómarkvissari og um leið minna áhugaverður. Vonandi taka menn sig saman í andlitinu og laga þetta þessar síðustu vikur.
Laxarnir sem sumir mættu í júní eru búnir að sjá allar flugur sem hnýttar hafa verið. Hættir að kippa sér upp við þær. Hins vegar er hann farinn að huga að hreiðurgerð og verður þá skapstyggari en áður og gæti hæglega í einhverju fýlukasti tekið aðvífandi flugu. Nú eða þeir eru einfaldlega að taka til í kringum sig og vilja ekki þessi aðskotadýr í námunda við hrognin sín. En þetta er ekki vitað að fullu og eins og sumir segja, sem betur fer.
Við birtum hér topp tíu listann og í sviga fyrir aftan er fjöldi laxa sem höfðu veiðst á sama tíma í fyrra. Þriðja talan er svo vikuveiði síðustu viku.
1. Ytri – Rangá og Vesturb. Hólsár 4.037 (2.822) Vikuveiði 776
2. Eystri – Rangá 2.985 (2.598) Vikuveiði 463
3. Þverá/Kjarrá 1.313 (1.259) Vikuveiði 23
4. Miðfjarðará 1.290 (1.428) Vikuveiði 83
5. Norðurá 1,280 (1.337) *Vikuveiði liggur ekki fyrir
6. Hofsá 1.097 (526) Vikuveiði 82
7. Selá 1.071 (708) Vikuveiði 94
8. Urriðafoss 943 *Vantar tölur fyrir síðustu viku
9. Langá 901 (703) Vikuveiði 76
10. Haffjarðará 817 (839). Vikuveiði 43
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |