Eru í mokveiði í Geirlandsá

Hrafn H. Hauksson með 86 sentímetra sjóbirting úr Breiðtorfuhyl í …
Hrafn H. Hauksson með 86 sentímetra sjóbirting úr Breiðtorfuhyl í Geirlandsá. Þeir félagar eru svo sannarlega búnir að gera hörkuveiði og voru í gærkvöldi búnir að landa um sextíu fiskum á þremur vöktum. Ljósmynd/HHH

Holl sem nú er að veiða í Geirlandsá er í sannkallaðri mokveiði. Í gærkvöldi var hópurinn að nálgast sextíu fiska eftir þrjár vaktir eða einn og hálfan dag. Það er um tólf prósent af haustveiðinni í Geirlandsá, en heildarveiðin er að detta í fimm hundruð fiska.

Einn þeirra sem nú er staddur í Geirlandsá er Hrafn H. Hauksson sem er leiðsögumaður í Laxá í Kjós. Með honum eru nokkrir harðduglegir veiðimenn sem flestir eiga það sameiginlegt að vera leiðsögumenn og fáir standa þeim á sporði þegar kemur að veiðiskap.

Mikið er af fiski í Ármótum segir Hrafn. Þessi veiddist …
Mikið er af fiski í Ármótum segir Hrafn. Þessi veiddist einmitt þar og veiðimaður er Jóhann Freyr Guðmundsson. Þessi hængur mældist 85 sentímetrar. Ljósmynd/HHH

Haukur sagði í samtali við Sporðaköst að þetta væri búið að vera frábært, „svona pent að orði komist.“ Þeir félagar lönduðu fjörutíu fiskum í gær. „Já. Það var mikið af þessu stórt, Við vorum með tíu til fimmtán yfir áttatíu. Við höfum séð þá stærri núna og allavega tvo sem við erum sammála um að nái meternum,“ sagði Hrafn þegar við náðum honum eftir vaktina í gærkvöldi og menn voru enn að telja saman veiðina.

Fiskurinn er að hans sögn dreifður um alla á. Oft hefur loðað við Geirlandsá, sérstaklega í vorveiðinni að stærstur hluti af fisknum er í Ármótum. Hrafn segir að vissulega sé mikið af fiski þar en það sama megi segja um marga veiðistaði. „Það er alveg kökkur af fiski í flestum af þessum lykilstöðum og alveg upp í gljúfur. 

Höfðabólshylur í Geirlandsá. Þarna kastar Óttar Finnsson púpu fyrir birtinga. …
Höfðabólshylur í Geirlandsá. Þarna kastar Óttar Finnsson púpu fyrir birtinga. Gljúfrin sem Geirlandsá fellur um eru mögnuð. Ljósmynd/HHH

Við vorum hérna á sama tíma í fyrra og veiddum þá svipað og ég held að það hafi bara verið einn sem fengum í Ármótum. Núna er haugur af fiski þar og sama má segja um Kleifarnef, Mörtungunef og það er fullt af fiski í Marðarhelli og bara á víð og dreif um ána.“

Þeir félagar voru fyrir skemmstu í Tungufljótinu og segir Hrafn að þar hafi verið mikið stuð og ótrúlega mikið af stórfiski, en eins og við höfum sagt frá hér þá hafa veiðst þar tveir sjóbirtingar í haust sem hafa náð þeirri ótrúlegu stærð að mælast 100 og 101 sentímetri.

Sigþór Steinn Ólafsson með enn einn stórfiskinn sem þeir félagar …
Sigþór Steinn Ólafsson með enn einn stórfiskinn sem þeir félagar hafa handleikið í Geirlandsá. Þessi veiddist í Ármótum og mældist 87 sentímetrar. Ljósmynd/HHH

Þegar Hrafn er spurður um skýringuna á vaxandi magni af stórfiski á þessu svæði. Hann segir ljóst að veiða og sleppa fyrirkomulagið í Tungufljóti sé helsta ástæðan þegar það er haft í huga að sjóbirtingurinn verður gamall. Hann segir að það verði spennandi að fylgjast með hvernig Geirlandsáin muni þróast þegar árunum fjölgar sem veiða og sleppa verður stundað þar.  

Tungulækur gaf einnig góða veiði í gær en þar voru bókaðir 22 fiskar og þar af voru sex fiskar áttatíu sentímetrar eða stærri og stærsti 86 sentímetrar. Það er ljóst að síðustu dagarnir í sjóbirtingnum eru að gefa einstaklega vel og hlutfallið af stórfiskum er ótrúlega gott.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert