Fyrsta skóflustunga að nýju veiðihúsi

Finnur og Esther formaður tilbúin í fyrstu skóflustunga. Stærri verkfæri …
Finnur og Esther formaður tilbúin í fyrstu skóflustunga. Stærri verkfæri biðu álengdar. Peysurnar eru í stíl. Heimaprjónaðar með laxamynstri. Ljósmynd/Stóra

Framkvæmdir við nýtt veiðihús fyrir neðra svæðið í Stóru – Laxá í Hreppum hófust með formlegum hætti í gær. Þá tóku Esther Guðjónsdóttir, formaður veiðifélagsins og Finnur B. Harðarson, landeigandi og fulltrúi leigutaka fyrstu skóflustunguna að nýja húsinu. 

Gert er ráð fyrir að húsið verði komið í gagnið fyrir næsta veiðitímabili. Húsið er flutt inn í einingum frá Svíþjóð er stefnt að því að öll undirbúningsvinna verði kláruð fyrir mars á næsta ári þegar von er á gámunum.

Landeigendur og leigutakar voru viðstaddir. Hér sér upp að núverandi …
Landeigendur og leigutakar voru viðstaddir. Hér sér upp að núverandi veiðihúsi frá staðsetningunni sem valin var fyrir nýja húsið. Ljósmynd/Stóra

Húsinu var valin staðsetning stutt frá gamla húsinu, í landi Skarðs. Það er nær brúnni yfir Stóru – Laxá, fyrir þau sem þekkja til. Húsið er miklu stærra en það sem hefur þjónað veiðimönnum svo vel fram til þessa. Gamla húsið bauð upp á fjögur herbergi og var samtals um 90 fermetrar en nýja húsið er 325 fermetrar og þar er sjö herbergi og eru þau stærri og rúmbetri en var í gamla húsinu og hvert og eitt er búið sér baðherbergi. Esther segir að húsið sé allt hið vandaðasta og bjóði upp á „allt til alls.“

Teikning að nýja húsinu. Það er 325 fermetrar á móti …
Teikning að nýja húsinu. Það er 325 fermetrar á móti 90 eins og það gamla er. Ljósmynd/Stóra

Hún segir að með þessum framkvæmdum nú og frekari byggingum á svæði fjögur í framtíðinni vonist þau til að taka Stóru – Laxá upp á nýtt plan.

Heitur pottur og gufa verða í boði og fullkomið eldhús, enda urðu þær breytingar á fyrirkomulagi í Stóru – Laxá í sumar að svæði þrjú var sameinað neðri svæðum og er stangafjöldi þar nú sex stangir. Þá var að sama skapi tekin upp leiðsögumanna- og fæðisskylda.

„Það er stefnan hjá okkur að bæta vegi og aðgengi að svæðinu, sem var áður svæði þrjú. Það kom í ljós sem við höfum haldið að svæði þrjú var bæði vanmetið og vanveitt og gaf nú mun betri veiði en undanfarin ár. Þar varð fjórföldun á veiði enda var það nú veitt reglulega og með leiðsögumönnum.“ 

Það var ekkert verið að tvínóna við hlutina. Hér er …
Það var ekkert verið að tvínóna við hlutina. Hér er búið að fletta ofan af svæðinu og jarðvegsskipti hafin. Ljósmynd/Stóra

Húsið á efra svæðinu verður áfram í notkun næstu tvö árin að minnsta kosti. En ákveðin hefur verið staðsetning fyrir nýtt veiðihús þar. „Það verður um það bil í kílómeters fjarlægð frá húsinu sem er í dag. Uppi á ásnum aðeins norðar og þaðan er geggjað útsýni yfir hreinlega yfir allt Suðurland. Þaðan sést líka ofan í gljúfrin og er mjög skemmtileg staðsetning. Við erum að áætla að að verði komið í gagnið eftir tvö til þrjú ár,“ sagði Esther í samtali við Sporðaköst.

Hún upplýsir að seiðabúskapur í ánni hafi í sumar verið með allra besta móti og því lofi framhaldið góðu. Stóra – Laxá gaf mjög góða veiði í sumar og er veiðisumarið 2022 næst besta ár á svæðinu, eða allt frá árinu 2013.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
100 cm Mýrarkvísl Tim Racie 23. júlí 23.7.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert