Stangaveiðifélag Reykjavíkur tilkynnti í dag að vorveiði í Varmá við Hveragerði hefst ekki þann 1. apríl eins og að var stefnt. Mælingar á vatnsgæðum Varmár sýna að um mengun er að ræða. Ákvörðun um þetta var tekin í samráði við Hveragerðisbæ og Veiðifélag Varmár. SVFR er með veiðiréttinn í Varmá á leigu og selur veiðileyfi í hana.
Að sögn Ingimundar Bergssonar, framkvæmdastjóra SVFR verður farið í frekari mælingar til að meta hvort mengunin sé aðeins í næsta nágrenni hreinsistöðvar við ána eða hvort mengunin er víðtækari. „Meðan þær mælingar fara fram var gert samkomulag hagaðila um að loka fyrir veiði á svæðinu þangað til mælingar staðfesta að gildi séu undir viðmiðunarmörkum. Við verðum því að bíða fyrst um sinn eftir mælingum. Við vonum það besta en auðvitað er ekki gaman að þurfa að grípa til þessara aðgerða sérstaklega með þessum skamma fyrirvara,“ sagði Ingimundur í samtali við Sporðaköst.
Veiði átti að hefjast um mánaðamótin en eins og staðan er núna er algerlega óvíst hversu lengi opnun dregst.
í frétt á heimasíðu SVFR er sagt að veiðimenn sem þegar hafa keypt veiðileyfi í Varmá og falla dauð og ómerk vegna mengunarinnar muni fá þau endurgreidd.
Það er Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sem fylgist með vatnsgæðum í Varmá og greindi mengunina en hún er talin frá hreinsistöð Hveragerðisbæjar við Vorsabæ.
Óttast er að aprílmánuður allur kunni að vera úti þegar kemur að veiði í ánni en Varmá hefur jafnan verið mjög eftirsótt í vorveiði, sérstaklega fyrstu dagana í apríl.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |